Menntamál - 01.04.1962, Blaðsíða 72
62
MENNTAMÁL
á þeim sviðum, veljast gjarna saman í flokka. Við
komum að þeim síðar í öðru samhengi.
Þó að börn á flokkaaldrinum séu svo félagslega sinnuð,
að undantekningar frá því eru næsta fágætar (aðeins
0,25% af rúmlega 12.000 börnum, sem rannsökuð voru
í Wien), er viðleitni þeirra til þess að komast í sambönd
og hæfni þeirra til þess að láta óskir sínar rætast í því
efni yfirleitt mjög mismundandi. Sum eru eftirsótt og
kringum þau flykkjast félagar, sem leita samstarfs við
þau. Ósjaldan eru þau eftirsóttu áhugalítil félagslega og
vilja jafnvel draga sig í hlé. Hins vegar eru til nemend-
ur, sem — þrátt fyrir einlæga viðleitni — tekst ekki að
komast í nein teljandi sambönd.
Sú staðreynd, að vissir nemendur eiga erfitt með að
komast í vináttutengsl, getur stafað af ýmsum ástæðum.
Menn virðast vera jafn mismunandi varðandi félagsleg-
an þroska og almenna greind yfirleitt. 1 æsku hafa viss
ytri atriði mikið að segja, þegar um vináttutengsl er að
ræða. Áberandi lýti orka fráhrindandi á börn, sérkenni-
legt útlit, framandi eða leiðinlegar venjur, óvenjulegur
talsmáti, fátækt, tötralegur fatnaður o. s. frv. Hins vegar
kemur það fyrir, að þau velja sér félaga, sem eru sér-
stæðir og ólíkir fjöldanum. Sígilt dæmi um það er að-
dáun Tom Sawyers á hinni hirðulausu og þverúðarfullu
hetju, Stikilsberja-Finni.
Rannsóknir hafa leitt í ljós, að afstaða barnsins innan
fjölskyldunnar (einbirnið, elzta eða yngsta barnið í
systkinahópnum, aldursmismunurinn á systkinunum og
fleira) hefur áhrif á framkomu þeirra og hlutverk í hópi
félaganna. Staðsetning heimilisins skiptir miklu máli. Sé
það afskekkt og eigi börn ekki kost á leikfélögum, verða
þau stundum sérstæð og mjög hlédræg.
Hugblærinn, sem á heimilinu ríkir, hefur hér einnig
sín áhrif. Ef foreldrarnir eru strangir, verða börnin
venjulega þvinguð og óframfærin í framkomu. Öfgafull-