Menntamál - 01.04.1962, Blaðsíða 62
52
MENNTAMÁL
KARL FALK:
Þegnskaparuppeldi í skólum.
Ritgerð sú, sem hér liefst og ljúka mun í næsta liefti Mennta-
mdla, er eftir Karl Falk, fyrrv. yfirkennara í Gautaborg. Er hún
einn þáttur í bókinni „Várt arbets sátt“, sem út kom fyrst árið 1936,
og að minnsta kosti tvisvar síðan.
Karl Falk er einn af aðalbrautryðjendum starfsuppeldisfræðinn-
ar í Sviþjóð, og honum hefur jafnan verið veitt athygli, er hann
hefur kvatt sér liljóðs.
Allt til þessa hefur harla lítið verið ritað um starfsuþpeidisfræð-
ina á okkar tungu. Áliugasamir kennarar hafa orðið að leita sér
fræðslu um hana í erlendum ritum. Tilgangur minn nteð þýðingu
þessarar ritgerðar er að veita kennurum greiðari aðgang að fræðslu
um þessi mál.
Siguröur Gnnnarsson.
Skóli ocj ujjpeldi.
í rökræðum um uppeldismál er því öðru hverju haldið
fram, að uppeldi barnsins sé hlutverk heimilisins, en ekki
skólans, og ef skólinn tæki uppeldi á námsskrá sína, væri
hann að þrengja sér inn á svið heimilisins.
Enginn ber brigður á það, að heimilið er hið eðlilega
umhverfi og starfssvið barnsins og þar á að leggja
undirstöðu uppeldisins. En skólinn er ekki keppinautur
heimilisins, heldur því til aðstoðar. Ber honum ekki skylda
til að skerast í leik, ef heimilið, vegna breyttra aðstæðna,
þarf á hjálp að halda?
Er í rauninni unnt að skilja algjörlega á milli uppeldis
og kennslu? Þegar barnið kemur frá heimili sínu í um-
hverfi og andrúmsloft skólans, hefst nýr, veigamikill þátt-