Menntamál - 01.04.1962, Blaðsíða 104
94
MENNTAMÁL
inu, sér um, að þeim sé svarað reglulega, en krafizt get-
ur hann aðstoðar annarra stjórnarmanna og varastjórn-
armanna eftir þörfum.
4. Formaður yfirlítur reikninga sambandsins í lok
hvers reikningsárs og leggur þá fram á stjórnarfundi.
Skal formaður annast um, að reikningarnir verði síðan
endurskoðaðir.
5. Formaður sér um, að haldin sé bréfabók fyrir sam-
bandið. Skulu í hana færð öll bréf, er sambandinu ber-
ast, og afrit af þeim bréfum, er það sendir.
IV.
1. Féhirðir innheimtir árgjöld og veitir móttöku því
fé, sem sambandinu áskotnast. Hann leggur það á vöxtu
í ríkistryggða innlánsstofnun, jafnótt sem goldið er.
Hann greiðir úr sambandssjóði kostnað við fulltrúaþing
og kennaraþing og önnur útgjöld sambandsins eftir
ávísun formanns.
2. Féhirðir semur ársreikninga sambandsins og af-
hendir þá formanni í lok hvers reikningsárs.
V.
Ritari skrásetur gerðir stjórnarinnar og það, sem
gerist á stjórnarfundum. Gerðabók skal lesin upp í lok
hvers fundar, borin undir atkvæði stjórnarmanna og
undirrituð af formanni og ritara, er hún hefur verið sam-
þykkt.
VI.
Ekki má birta opinberlega það, sem gerist á stjórnar-
fundum, né neinar gerðir stjórnarinnar. Ekki heldur
neinar fregnir þaðan eða útdrátt úr fundarbókinni af
samþykktum eða ályktunum, án þess að áður hafi verið
samþykkt á stjórnarfundi slík birting.
13. grein. Meðan ekki er skipaður sérstakur gerðar-