Morgunn - 01.06.1948, Qupperneq 44
34
MORGUNN
nefndina var bætt annarri nefnd, sem skipuð var konum.
Þær klæddu úr hverri spjör systumar, sem vom grátandi
af ótta og hræðslu. Fötin voru síðan reyrð utan um ökla
þeirra, þær voru látnar standa á glerplötum og öðrum
einangrunartækjum, en niðurstaðan af rannsóknunum varð
þrátt fyrir það sú, að nefndin lýsti opinberlega yfir því,
að þrátt fyrir allar varúðarráðstafanir hefðu höggin dun-
ið á veggjum og gólfi tilraunaherbergisins, og hið óþekkta
afl hefði svarað með höggunum öllum spurningum rétt,
og það þótt sumar spurningamar hefðu aðeins verið born-
ar fram í huganum en ekki með orðum. Maðurinn, sem
hótað hafði að fleygja sér í Genesee-fossana hætti við það
áform sitt.
Meðan almenningur leit á málið eins og annað gaman
og skemmtilega dægrastyttingu, voru menn umburðar-
lyndir, en þegar málið fór að fá á sig alvarlegri svip og
það fór að verða ljóst, að spiritistunum var full alvara
með mál sitt, fór umburðarlyndið að minnka, en stormur
af hleypidómum, trúarlegum ofsa og skynsemdarlausum
æsingi fór yfir Rochhesterborg. Mannfjöldinn safnaðist
saman fyrir utan húsið, sem spíritistarnir voru að halda
fund sinn í, allt lenti í uppnámi og Fox-systrunum var
forðað frá líkamlegum meiðslum með því að skjóta þeim
með leynd út um bakdyr og koma þeim þannig undan hálf-
trylltum mannsöfnuðinum.
Að nokkuru má segja, að spíritistamir hafi átt sök á
þessu sjálfir. Þekkingin var vitanlega engin á málinu og
öll reynsla á byrjunarstigi, og þessvegna höguðu sumir
þeirra, sem við fyrirbrigðin fóm að fást, sér kjánalega.
Sumir vom trúgjamir og hlupu dómgreindarlaust eftir
öllu, sem þeir töldu sig fá frá öðrum heimi, og gáfu þann-
ig andstæðingunum tilefni spotts og fyrirlitningar. Þó bar
engan veginn meira á þessu en vænta mátti, eftir þeim að-
stæðum, sem eðlilegar voru á frumbýlingsárum hreyfing-
arinnar.
Fox-fjölskyldan hélt starfj sínú áfram þrátt fyrir marg-