Morgunn - 01.06.1948, Side 45
MORGUNN
35
ar árásir og þær sumar næsta lúalegar. Svikabrigslin
ðundu á systrunum, en þær voru börn, óþroskuð börn,
Sern auðvelt var fyrirfullorðna að leika á. En starfið hélt
áfram. Vorið 1850 voru þær í New York og héldu fundi
við geysilega aðsókn. Hinn merki ritstjóri Horace Gree-
ley*) skrifaði vinsamlega um málið undir eigin nafni sinu,
en annars sýndu blöðin, allflest, málinu andúð. Aftur fór
fjölskyldan í annað ferðalag og kom þá aftur til New York,
°g allsstaðar var aðsóknin gífurleg. Hin ósýnilegu öfl
hvöttu mjög til starfsins og héldu því eindregið að systr-
UnUm, að þetta væri köllunarverk, sem þeim væri trúað
fyrir af æðri máttarvöldum.
En þetta starf þeirra systra átti einnig sínar skugga-
hliðar, freistingarnar voru margar. Þekkingin á málinu
Var sama og engin. Þær ætluðu sér allt of mikið starf og
hunnu ekki að velja sér félagsskap.
f'ná þessum tíma er til smábæklingur, sem heitir „The
Love Letters af Dr. Elisha Kane“ (Ástarbréf Elisha Kane,
hæknis), sem varpar ijósi yfir líf Margaret Fox og það,
hvernig sumir litu á starf hennar. Elisha Kane, læknir,
Sem síðar varð frægur maður fyrir heimskautsrannsóknir
sinar, kynntist árið 1852 Margaret Fox, sem var falleg ung
stúlka, og hafði mikil áhrif á karlmenn. Hann hélt, að
miðiisstarf Margaret væri reist á blekkingum einum og
Var sjálfur púrítana-trúar og kærði sig ekki um að leita
lengra í andlegum efnum en trúflokkur hans taldi rétt.
Skoðun hans var sú, að Margaret væri á valdi Leah systur
Slnnar, sem notaði sér hana að f járþúfu, og þetta hélt hann
eins fyrir því, þótt Leah giftist um þessar mundir auðug-
Um manni, að nafni Underhill. Elisha Kane, læknir, trú-
l°faðist Margaret, lét veita henni fyrirtaks menntun með-
an hann var í heimskautsleiðangri sínum, giftist henni
Slðan einskonar skyndigiftingu, er hann kom heim, og and-
aðist skömmu síðar, árið 1857. En þá sté Margaret, sem
1 ^iðar í kjöri við forsotakosningar i Bandaríkjunum,