Morgunn - 01.06.1948, Page 56
46
MORGUNN
unarverk, og það mótaði framkomu hans alla, að spírit-
isminn var honum heilagt mál. Enginn af miðlunum hafði
fram að tíma hans haft annan eins skilning á mikilvægi
v. v. Home.
Margir telja hann merkasta miðil, sem uppi hefir verið.
hinnar ungu hreyfingar, og þrátt fyrir miklar ofsóknir
gat enginn sett blett á mannorð hans.
Hjá honum gerðust flest eða öll þau sálrænu fyrirbrigði
sem síðar eru kunn í sögu sálarrannsóknanna. Líkamn-
ingafyrirbæri gerðust í návist hans, en urðu sennilega
veikari fyrir það, að hann neitaði að hafa fundi sína nema
í björtu. Lyftingafyrirbrigðin voru svo sterk, að sjálfur
sveif hann í lausu lofti út um opin glugga í herberginu,
sem hann var staddur í, og inn um annan opinn glugga í
næsta herbergi, og þetta gerðist uppi á lofti í húsinu, og
var vottað af tveim þjóðkunnum mönnum, enskum, sem
voru hjá honum. Hann gekk, í transi, að opnu eldstæðinu
og baðaði hægt andlit og hendur í logandi eldinum, án
þess nokkur merki sæjust þessarar furðulegu eldskírnar