Morgunn - 01.06.1948, Síða 62
52
MORGUNN
an lokk úr hinu geysimikla hári sínu, og sýnir hann, að
hár hennar er gull-brúnt. Eitt kvöldið taldi ég æðaslög-
in i úlnlið Katie, þau voru 75 á mínútu, en þegar ég taldi
æðaslög ungfrú Cook örstuttu síðar, reyndust þau vera
90 á minútu. Þegar ég lagði eyrað upp að brjósti Katie,
heyrði ég fastan hjartasláttinn og rólegan, en eftir á gekk
ég úr skugga um, að hjartasláttur ung frú Cook er hvorki
eins fastur né rólegur".
Og enn segir Sir William:
„Síðustu vikuna áður en Katie hætti að koma fram hjá
okkur hélt ungfrú Cook venjulega fundi fyrir mig á hverju
kveldi til þess að gefa mér tækifæri til að taka ljósmyndir
af fyrirbrigðunum við ljós, sem ég hafði útbúið með það
fyrir augum. Fimm fullkomnum ljósmyndavéium hafði
verið komið fyrir í rannsóknastofu minni, sem áttu að
taka myndir af Katie frá ýmsum hliðum jafnharðan og
hún birtist okkur. Baðið til að framkalla plöturnar í var
til reiðu og f jöldi af plötum . .. Bókaherbergi mitt var not-
að sem byrgi fyrir miðilinn ... Við, sem viðstödd vorum,
sátum í rannsóknastofunni og snerum andlitum að tjald-
inu fyrir hurðinni inn í bókaherbergið, og fyrir aftan okk-
ur hafði ljósmyndavélunum verið komið fyrir, en þær áttu
að taka myndir af líkamningnum óðara og hann kæmi í
ljós, og einnig áttu þær að taka myndir inn í bókaherberg-
ið, þegar tjaldinu yrði lyft frá dyraopinu . . . við fengum a.
m. k. fimmtán myndir af hverjum tilraunafundi.. . sum-
ar þeirra skemmdust við framköllunina, en samt á ég 44
ijósmyndir frá þessum fundum, nokkrar lélegar, nokkrar
ónýtar en aðrar ágætar“.
Enn segir Sir William:
„Ég hefi séð ungfrú Cook og Katie samtímis, lýst and-
lit þeirra upp á víxl með fosfór-lampanum mínum, svo að
ég sá greinilega það, sem ég hefi lýst... Síðan hafa þær
báðar, miðillinn og líkamaða veran staðið hér í húsi mínu
við hlið mína og með átta öðrum fundargestum en mér,
í fullu rafmagnsljósi“.