Morgunn - 01.06.1948, Page 66
56
MORGUNN
NOKKRIR MIÐLAR A SlÐARI HLUTA 19. ALDAR.
Spíritismanum óx fylgi jafnt og þétt, enda komu nú fram
mjög miklir miðlar hver af öðnnn, en þekkingarleysi, bæði
almennings og miðlanna sjálfra, gerði það að verkum, að
ýmsar skuggahliðar komu fram á málinu, sem töfðu fram-
gang þess. En reynslan hefir stundum verið sú um líkamn-
ingamiðlana, að siðferðisþrek þeirra stendur ekki í réttu
hlutfalli við styrkleikann í þessari merkilegu sérgáfu.
Mikla athygli vöktu um þetta leyti Eddy-brœðumir, sem
voru amerískir að uppruna. Sálrænir hæfileikar voru arf-
gengir í ætt þeirra, formóðir þeirra hafði verið dæmd til
dauða fyrir galdra í hinum fræga galdradómi í Salem árið
1692, og móðir þeirra var gædd ríkum miðilsgáfum. Þeir
ólust upp við fátækleg kjör á sveitabæ í Vesturheimi, en
snemma bar á furðulegum fyrirbrigðum í návist þeirra,
og síðar á ævinni gerðust öll þessi fyrirbrigði hjá þeim:
sálræn högg, lyftingar á hlutum, sem engin mannshönd
snerti, þeir máluðu merkilegar myndir með olí'u- og vatns-
litum undir andaleiðsögn, þeir sögðu fyrir óorðna hluti,
töluðu annarlegum tungum, læknuðu sjúka, voru gæddir
skyggnigáfu, rituðu ósjálfráða "kkrift, voru gæddir hlut-
skyggnihæfileika og hjá þeim komu fram líkamaðar verur.
Olcott, ofursti, sem frægur varð síðar, rannsakaði hæfi-
leika þeirra um langt skeið og gerði allskonar tilraunir
með þá. Um þetta leyti var aðalviðfangsefni rannsókna-
mannanna að sanna, að manngerfingarnir, væru sjálf-
stæðar verur en miðlarnir væru hér ekki að koma fram
sjálfir og leika á fundafólkið. Sú staðreynd varð eðlilega
til þess að styrkja slíkar grunsemdir gegn miðlunum, að
flestir þeirra kröfðust þess að sitja einangraðir frá fund-
armönnum í tilluktu byrgi meðan líkamningarnir voru að
byggja sig upp. Þó nota engan veginn allir miðlar þessa
varúðarráðstöfun. D. D. Home notaði hana aldrei. öll fyr-
irbrigði hans gerðust þann veg, að hann sat mitt á meðal
fundafólksins og aldrei í dimmu. Aðrir miðlar sitja sjálfir