Morgunn - 01.06.1948, Qupperneq 92
82
MORGUNN
lýsing sína, að hún væri orðin sannfærð um framhaldslíf
mannssálarinnar. Hún var systir brezka stjórnmálaskör-
ungsins Bálfours lávarðar og forsætisráðherra. Hann var
lengi meðlimur Brezka Sálarrannsóknafélagsins og aðhyllt-
ist skýringu spíritistanna á fyrirbrigðunum. Og nú fyrir
nokkrum mánuðum hefir einn af efagjörnustu meðlimum
félagsins, sem nú er uppi, Harry Price, rökfræðiprófessor
lýst yfir því, að hann trúi á annað líf. Hann vill raunar ekki
viðurkenna, að tilvera annars lífs sé sönnuð, en staðreynd-
irnar hafa sannfært hann eigi að síður.
Eitthvert merkasta verk Brezka Sálarrannsóknafélags-
ins eru tilraunir þess með hinn fræga miðil frú Piper og
arannsóknirnar á miðilsgáfu hennar.
Leonora Piper var frá Boston ein og læknisfrúin, „Mar-
gery,“ sem síðar varð afburða miðill. Eins og reynslan
hefir orðið um suma aðra miðla, var þessi merkilega gáfa
hennar ekki starfandi nema um nokkurra ára skeið. Þegar
Conan Doyle heimsótti hana í New York árið 1922, voru
hæfileikar hennar fyrir löngu horfnir, og hún minntist eins
og í fjarska hinna merkilegu ára ævi sinnar, þegar hún var
undir rannsókn vísindamannanna. Frú Piper var sjálf í
efa um, hvaðan fyrirbrigðin, sem hjá henni gerðust, stöf-
uðu. Hún var sjálf í meðvitundarlausum transi meðan þau
gerðust og vissi ekkert annað en það, sem henni var öðru
hvoru sagt.
Meðal þeirra, sem rannsóknirnar á henni ráku, vorU
þrír afburðamenn, prófessor Wittiam James, hinn heims-
frægi sálfræðingur og heimspekingur við Harvard-háskól-
ann, dr. Richard Hodgson og prófessor Hyslop, hinn frægi
rökfræðikennari við Columbia-háskólann. Allir þessir þrír
menn sannfærðust ekki aðeins um raunveruleik fyrirbrigð-
anna, heldur aðhylltust allir þá skýring á þeim, að þau sönn-
uðu tilveru andaheimsins og framhaldslíf mannssálarinnar.
Próf. William James kynntist frú Piper fyrst árið 1885,
er vinur hans sagði honum af henni. Hann var algerlega
vantrúaður í byrjun, en ákvað þó að rannsaka þetta mál