Morgunn - 01.06.1948, Side 108
98
MORGUNN
indamenn rannsaka fyrirbrigði sín, en þegar þeir gátu
ekki uppgötvað nokkur svik hjá henni, þrátt fyrir allar
hugsanlegar varúðarráðstafanir, létu þeir málið falla niður
og birtu ekki skýrslurnar um rannsóknir sínar. Sú var
sannleiksþjónusta þeirra vísindamanna. En þá vaknaði
áhugi próf. Hyslops fyrir hæfileikum hennar. Hann rann-
sakaði hana lengi og þótt hann væri sennilega miklum
mun frægari maður en nokkur þeirra vísu manna, sem
áður höfðu rannsakað hana, hikaði hann ekki við að birta
almenningi hinar stórmerku skýrslur af rannsókn sinni.
En hann komst ekki að niðurstöðu um, hvernig hinir ósýni-
legu gestir framleiddu raddirnar.
L. V. Guthrie, læknir, sem var í miklu áliti fyrir lærdóm
sinn, var læknir frú Blake. Hann sannfærðist algerlega um
fyrirbrigði hennar, og hann segir svo frá:
„Einn af aðstoðarlæknum mínum var ung stúlka. Bróðir
hennar hafði farið til Filipseyjanna, og henni lá mikið á,
að hafa bréfasamband við hann, en hún hafði skrifað hon-
um hvað eftir annað, sent bréfin til félagsins á Filipseyj-
unum, sem hann vann fyrir, en ekkert svar fengið. Hún
fékk nú fund hjá frú Blake. Þar talaði rödd móður hennar,
sem önduð var fyrir nokkrum árum, og sagði henni að
skrifa bróður sínum og senda bréfið til staðar, sem hún
tiltók, C.-, og þá mundi hún fá svar. Hún gerði þetta og
fékk svarið innan tveggja eða þriggja daga. Það kom upp
úr kafinu, sem engum heima var þá kunnugt, að bróðii'
hennar var kominn heim til Bandaríkjanna."
önnur frásögn Guthries læknis er á þessa leið:
„Ein bezta vinkona mín var af mjög þekktri ætt hér
vestra. Afi hennar hafði dáið með sorglegum hætti. Hann
hafði fundizt dáinn með brotna höfuðskel undir hárri brú.
Nokkrum árum síðar fékk þessi vinkona mín fund hjá frú
Blake, en hafði alls ekki í huga að ná sambandi við afa
sinn. Hún varð mjög undrandi, þegar rödd afa hennar tal-
aði til hennar og sagði henni, að hann hefði alls ekki dottið