Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 113
MORGUNN
103
líkt Emmu systur minni. Þið vitið að hún er dáin fyrir 25
árum.“
Mikill fjöldi slíkra ,,aukamynda“ hefir stundum komið
fram á sömu plötunni hjá beztu Ijósmyndamiðlunum. Svo
gerðist stundum hjá herra Hope í Cre í Englandi, sem lát-
mn er nú fyrir nokkrum árum, en frægust er um þetta
myndin, sem ljósmyndamiðillinn frú Deane í London tók
einhverju sinni á vopnahlésdaginn, þar komu ekki minna
en 50 ,,auka“-höfuð fram á plötunni.
Stundum koma myndir af framliðnu fólki fram á plöt-
Ur» sem aldrei hafa komið í ljósmyndavél, en miðillinn
^ðeins haldið milli handa sinna í innsigluðum pakka með
°ðrum plötum. Og stundum hafa komið fram á plötunum
skrifaðar orðsendingar, jafnvel langar, með þekkjanlegri
nthönd látinna manna.
R-úmsins vegna er ekki hægt að segja nánar frá þessum
hterkilegu ljósmyndafyrirbrigðum. Menn hafa reynt að
skýra þau frá ýmsum hliðum, út í það verður ekki farið
frekar hér en þegar er gert, en dr. Einar Arnórsson, sem
^ikillar þekkingar hefir aflað sér á þessum efnum, lýkur
ritgerð sinni með þessum orðum:
»En ekki er við það að dyljast, að hugmyndir spíritist-
anna komast lengst í áttina til að skýra þessi fyrirbrigði,
°8 þegar þetta efni er skoðað allt í sambandi við önnur sál-
raan fyrirbrigði, þá virðist skýring spiritistanna alls eigi
sv° ósennileg sem þeim mun sýnast, er ekki hafa kynnt sér
rannsókn á þeim til nokkurrar hlítar og enga reynslu hafa
s.]alfir. I þeim fyrirbrigðum er svo fjölmargt, sem bendir
1 þess, að framliðnir menn séu að brúa, eða að reyna að
rua djúpið milli þessa tilvistarsviðs, sem vér svo nefndir
Uandi menn erum á, og þess, sem þeir teljast vera komn-
ir á.“