Morgunn - 01.06.1948, Síða 120
110
MORGUNN
rækninni stórlega að hnigna, en um leið eykst aðstreymið
að kirkjum spíritista, sem nú skipta mörgum hundruðum
um þvert og endilangt landið. Mörgum sálarrannsókna-
mönnum og gætnari spíritistum geðjast ekki að því, hve
hreyfingin fær meiri og meiri trúarblæ á sig í sumum fé-
lögunum, en þá rás er ekki auðvelt að stöðva, og vafalaust
ber kirkjan á þessu mikla sök. Þegar spíritistarnir fá ekki
rúm í kirkjunni, mynda þeir umsvifalaust eigin söfnuði
og koma upp sínum eigin kirkjum. Þetta er hvorugum til
heilla, spíritismanum né kirkjunni. Kirkjan verður fyrir
þetta þröngsýnni og spíritisminn valtari á kili. Ýmsir beztu
menn spíritismans í Bretlandi, eins og Sir Oliver Lodge,
voru andvígir því að spíritistar stofnuðu söfnuði utan um
málefnið, en þeir spíritistar, sem það hafa gert, segja, að
til þess hafi þeir verið knúnir. einkum af kirkjunni, sem
vildi ekki eða gat ekki verið andlegt heimkynni þeirra
lengur.
Meðal spíritistanna er almennt álitið, að hreyfingunni
sé að stóraukast fylgi í Bret.landi, margt bendir til þess,
og þá ekki sízt skoðanakönnunin, sem áður getur. Meðal
áhrifamanna með Bretum hafa margir jafnan fylgt spírit-
ismanum að málum og svo er enn. Nýlega las ég um
merkan miðilsfund, sem haldinn var í sjálfu þinghúsi
Breta fyrir hóp þingmanna, og nýlegar fréttir benda til
þess, að innan háskólanna muni málið tekið til alvarlegri
rannsókna bráðlega, en áður hefir orðið. Biskupakirkjan
enska á í vök að verjast. Fyrir tólf árum skipaði erki-
bislcupinn nefnd manna til að rannsaka málið. Honum
þótti ekki lengur til setu boðið, svo háværar voru radd-
irnar orðnar innan kirkjunnar. En eins og ýtarlega hefir
áður verið sagt frá í MORGNI, reyndist niðurstaðan af þess-
ari rannsókn vera spíritismanum svo mjög í vil, svo langt
fram yfir það, sem erkibiskupnum hafi komið til hugar,
að hann tók þá óviturlegu ákvörðun, að neita að birta
skýrslu nefndarinnar. Hefir nú siðustu mánuðina verið
hafin herferð á hann um að birta skýrsluna, en hann varizt,