Morgunn - 01.06.1948, Qupperneq 122
112
MORGUNN
mikils metinn læknir, en hvarf frá því starfi og gerðist
heimskunnur rithöfundur og var sæmdur aðalstign. Hann
hefir verið nefndur „Páll postuli spíritismans." Hægri hönd
hans var um langt skeið Ernest Oaten, hámenntaður mað-
ur, sem enn starfar í fullu fjöri, þótt aldraður sé. Hinn
alkunni blaðamaður Breta, Hannan Swaffer, er einn áhrifa-
mesti forystumaður spíritista nú á dögum, og þar sem
hann er einn af mestu áhrifamönnum brezka jafnaðar-
mannaflokksins, hefir hann haft mikil áhrif á marga flokks-
menn sina. Hann hafði engu öðru sinnt en stjórnmálum
og blaðamennsku, þegar hann gerðist sannfærður spírit-
isti á fundum Dennis Bradley fyrir beinar raddir árið 1924.
Þar náði hann merkilegu sambandi við hinn látna blaða-
mannakonung Breta, Northcliffe lávarð, og bókin, sem
hann gaf út um það efni, vakti mikla athygli. Síðar hefii’
hann gefið út fleiri bækur um málið, sem mjög hafa verið
lesnar, og hann hefir flutt fyrirlestra um spíritismann 1
nálega öllum stærri borgum Bretlands. Hann er þjóðkunn-
ur maður, sem menn flykkjast til að hlusta á, og hefir
unnið málinu ómetanlegt gagn.
Þá er loks að minnast þess mannsins, sem síðast hefir
komið fram í fylkingum brezkra spíritista, en það er
Dowdinff lávaröur. Hann varð heimsfrægur maður í síð-
ustu styrjöld fyrir að stjórna loftvörnum í „orustunni um
Bretland," og er þjóðarhetja síðan. 1 hörmungunum, sem
þá dundu yfir þjóðina, sannfærðist hann um sambandið
við annan heim, og hann hikaði ekki. Þegar hann var bú-
inn að leysa af hendi þrekvirkið mikla og fékk lausn-
ákvað hann, að helga líf sitt algerlega því, að breiða út
með þjóðinni sannindi spíritismans, sem hann sá mikil'
vægari en allt annað. Á þessum fáu árum hefir hann ritað
hverja bókina af annarri, sem miklum vinsældum hafa
náð, flutt ógrynni af opinberum fyrirlestrum um málið
og gerst einhver skeleggasti forystumaður þess á ölluu1
sviðum. Má nærri geta, að Bretar hlusta eftir, hvað þetta
átrúnaðargoð þjóðarinnar kennir, þótt svo hafi skipaZh