Morgunn - 01.06.1948, Page 128
118
MORGUNN
fyrr í þessari ritgerð. Hann hafði mikil áhrif og fékk marga
af stéttarbræðrum sinum innan þýzku læknastéttarinnar
að til rannsaka málið, einkum líkamningafyrirbrigðin.
Ohlhaven var lærður maður í mörgum greinum og rit-
aði um málið bækur, sem miklum vinsældum náðu í þýzka-
landi, og lærdómsmaðurinn dr. Konstantin österreich, há-
skólakennari í Tubingen, varð áhrifamaður til þess að
ryðja málinu braut. Fáum árum fyrir síðustu heimsstyrj-
öld kom loks út geysimikið og merkilegt rit eftir mennta-
manninn, dr. E. Mathiesen Er það í tveim miklum bind-
um og nefnist: Das Persönliche Uberleben des Todes. Er
það sennilega hið merkasta yfirlitsrit um sálarrannsókn-
irnar og spíritismann, sem út hefir komið í nokkuru landi,
mjög nákvæmt og markað þeim geysilega lærdómi, sem
mörgum þýzkum vísindamönnum er eðlilegur.
Þótt margir þýzkir vísindamenn hafi sinnt sálarrann-
sóknamálinu, hefir spíritisminn aldrei náð líkri útbreiðslu
þar sem í enska heiminum. Þó voru mörg félög mynduð
víða um landið, bókaútgáfa nokkur og vönduð tímarit gef-
in út, en allt fór það í rústir á valdaárum nazistaflokksins,
sem reyndi að útrýma þesskonar bókmenntum og félög-
um, en síðustu fregnir frá Þýzkalandi herma, að nú séu
þýzku spíritistarnir að endurreisa félög sín og mynda með
sér sambönd að nýju, en bókaskorturinn stendur þvi starfi
mjög fyrir þrifum.
Til Itálíu barst hreyfingin þegar snemma á árum. Mið-
illinn mikli D. D. Home starfaði þar um skeið og sann-
færðust þá þegar nokkurir af fyrirmönnum þjóðarinnar
um sannleiksgildi spíritismans. En þann sið hafði D. D.
Home jafnan, að snúa sér til atkvæðamanna, sem í miklu
áliti voru, og gefa þeim kost á að sjá hin stórfelldu fyrir-
brigði, sem hjá honum gerðust. Með því taldi hann sig
vinna málinu mest gagn, því að sem alþýðleg hreyfing
mundi spíritisminn ekki eiga mikla framtíð.
Þrátt fyrir hina megnu andstöðu rómversk-kaþólsku
kirkjunnar, hefir ferill spíritismans í Italíu á margan hátt