Morgunn - 01.06.1948, Side 136
126
MORGUNN
Langfremstan íslenzkra miðla má vafalaust telja Indr-
iða heitinn Indriðason. Um hann reit Þórbergur Þórðar-
son, rithöf., bók fyrir nokkrum árum eftir fyrirsögn
Brynjólfs Þorlákssonar, organista, sem var Indriða ná-
kunnugur á starfsárum hans. Sannanamiðilli var Indriði
naumast mjög mikill, en líkamlegu fyrirbrigðin, sem hjá
honum gerðust, voru stórfelld og margvísleg. Hefði hon-
um enzt aldur til, hefði vafalaust mátt þjálfa með honum
flest eða öll miðlafyrirbrigðin, sem enn eru þekkt, og gegn-
ir það furðu, hve langt þeir E. H. Kv., séra Haraldur og
félagar þeirra komust í tilraununum, þegar þess er gætt,
að hann var í rauninni fyrsti miðillinn, sem þeir kynnt-
ust. Auk þess, sem þeir samherjarnir hafa ritað um Indriða,
eru stórmerkar greinarnar, sem Guðmundur Hannesson,
prófessor, reit um allmarga fundi, er hann sat með
Indriða.
Þá starfaði Isleifur Jónsson, aðalféhirðir, um skeið fyrir
Sálarrannsóknafélag Islands, og hafa greinar um reynslu
hans komið fyrir almenningssjónir í MORGNI. Um miðil-
inn Andrés heitinn Björnsson hefir frú Elínborg Lárus-
dóttir rithöf., skráð bókina, Úr dagbók miðils. Hann var
gæddur sterkri miðilsgáfu og starfaði um hríð undir leið-
sögu Einars H. Kvarans, en hans naut skemur við en skyldi
og var að mestu þrotinn að heilsu, þegar mönnum varð
ljós miðilsgáfá hans. Sterkasta hliðin á hæfileika hans
voru endurminningasannanirnar og skyggnigáfu ríkri var
hann gæddur. Þá starfaði lengi á vegum félagsins frá Guð-
rún Guðmundsdóttir. Hefir miklum fjölda manna verið gef-
inn kostur á að sitja transfundi hennar og látnir menn tíðum
sannað nærveru sína með því, að segja frá atvikum, sem
sannanlegt var, að engum viðstöddum gat verið kunnugt
um. Fyrir skömmu er komin út allstór bók um margvislega
reynslu frúarinnar, og fyrirbrigði, sem gerzt hafa á fund-
um hjá henni. Og að lokum hefir Hafsteinn Björnsson starf-
að fyrir Sálarrannsóknafélag Islands síðustu árin. Um
hann hefir frú Elínborg Lárusdóttir skráð allstóra bók, og