Morgunn - 01.06.1948, Qupperneq 148
138
MORGUNN
vísindin að aðalstarfi mínu en stunda hljómlistina sem
tómstundastarf. Vísindunum ætlaði ég að helga alvarlegri
og meiri ástundun".
Þegar maður heyrir slíka yfirlýsing er eðlilegt að mað-
ur vilji vita nánara, hver vísindin væri hér um að ræða.
Lester Coltman segir ljóslega frá því á þessa leið: „1 vinnu-
stofunni, sem ég starfa í, er aðalviðfangsefni okkar að rann-
saka þær gufur og þokur, sem hindra okkur en við vonum
að geta yfirunnið eftir nákvæmar tilraunir og rannsóknir.
Við vonum, að niðurstaðan af þessum rannsóknum verði
sú, að auðveldara verði en hingað til sambandið milli jarð-
arinnar og tilverusviðanna, sem við lifum á“.
Lester Coltman gefur nánari lýsingar af umhverfi sínu
og starfsskilyrðum, og þær frásagnir hans má taka sem
dæmi margra annarra, mjög líkra,.sem komið hafa í gegn
um miðlana, en honum segist svo frá:
„Áhugi jarðarbúa fyrir að vita um heimkynni okkar og
starfsstöðvar er skiljanlegur og eðlilegur, en það er örð-
ugt að lýsa þessu með jarðneskum hugtökum. Það, sem
ég segi hér frá sjálfum mér, má heimfæra upp á aðra, sem
hér eru, og líkir eru mér að eðli og hæfileikum.
Ég hóf á jörðunni vísindamannsferil og held honum áfram
hér, og til þess að halda áfram rannsóknum mínum heim-
sæki ég tíðum rannsóknastofur, þar sem til eru hin hárr'ín-
ustu tæki til að gera tilraunir. Ég á heimili, sem er yndis-
legt að öllu leyti. Ég hefi þar bókasafn fullt af handbókum,
sögulegum, vísindalegum og læknisfræðilegum, auk alls-
konar fagurfræðilegra bóka. Þessar bækur eru okkur hér
eins verulegar og bækurnar eru ykkur á jöðunni. Ég hefi
tónlistarherbergi með miklum tækjum til að framleiða alls-
konar tóna og hljóð. Ég á myndir, sem eru sjaldgæfar að
fegurð, og línurnar í húsgögnum mínum eru undurfagrar.
Ég bý þama einn um sinn, en vinir mínir koma iðulega
í heimsókn til mín og ég heimsæki þá í heimili þeirra. Og
þegar fyrir kemur, að yfir mig kemur einhver óljós hryggð,
heimsæki ég þá, sem ég unni mest á jörðunni.
A