Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 153
MORGUNN
143
ar kenna). Ég hafði ekki lesið staf af því, sem þér hafið
ritað um málið. Af ráðnum huga hafði ég forðast að lesa
Raymond, eftir Sir Oliver Lodge, og aðrar slíkar bækur,
til þess að það gæti engin áhrif haft á það, sem ég skrif-
aði sjálfur, en skýrslusafn Brezka Sálarrannsóknafélags-
ins, sem ég hafði þá lesið, víkur ekki með einu orði að þess-
Um efnum, lífsskilyrðunum fyrir handan gröf og dauða.
En allt um það fékk ég smám saman þær frásagnir, sem
Plöggin sýna, sem ég sendi yður. Þar er staðhæft við mig,
að í framhaldstilverunni lifi menn í líkama, þótt ósýnileg-
Ur sé jarðneskum augum, sem beri sömu mynd og jarð-
neski líkaminn, nema hvað hann sé fegurri. Að fyrir hand-
an sé ekki um að ræða elli eða þjáningar, og að þar séu
hvorki fátæklingar né auðmenn í jarðneskum skilningi.
Að menn klæðist þar fötum og neyti fæðu. Að menn sofi
t>ar ekki, þótt þeir tjái sig stundum falla í hálfgert með-
vitundarleysi, sem þeir kall; .,svefnhvíld,“ og ég hygg að
su eitthvað skylt dámóki. Að cftir einhvern tíma, sem þó
mun skemmri en venjulegt jarðlíf, hverfi þeir til annars
tilverusviðs. Það hefir verið staðhæft við mig, að ekki þurfi
ðH hjón að vera samvistum cfdr dauðann, en að ást karls
°g konu haldist áfram, þó lr.vs við það, sem oft kastar
skuggnm á sambúðina á jörðunni, og að sálir, sem eiga
sameiginlegar hugsanir, smeklc og tilfinningar clragist hvor
að annarri. Mér hefir verið sagt í ósjálfráðri skrift, að þeg-
ar eftir dauðann falli sálin í hálfmeðvitundarlaust hvíldar-
astand, mjög misjafnlega langt, menn finni ekki til líkam-
^gra þrauta en verði stundum fyrir sálarlegri þjáning. Mér
er sagt, að engu máli skipti um líðan látinna manna, hverja
þeir hafi aðhyllzt, á jörðunni, að líf þeirra sé yfirleitt
akaflega hamingjuríkt, og að menn óski þar ekki eftir
að hverfa aftur til jarðlífsins. Mér hefir lítið verið sagt
Ulu ,,verkin“, sem menn vinni þarna fyrir handan, en mikið
hugðarefnin, sem menn gefi sig að. En vera má, að
Peir nefna „verkin“ eða „störfin" þessu nafni, nefni þau
uugðarefni. „Verk“ eða ,,störf“ nefnum vér venjulega það,