Nýtt og gamalt - 01.01.1914, Síða 7
6
menn hefðu tíma og tækifæri til að
fara nákvæmlega í öll þau atriði,
sem þar geta komið til umræðu. En
nokkur atriði má þó benda á í blaða-
greinum, og væti vonandi að þeir,
sem unna biblíunni, Ijetu ekki slík
tækifæri ónotuð, bæði til þess að
hvetja fólk til þess að kynna sjer
biblíuna og tii þess að láta í ijósi
þakklæti sitt fyrir það, sem vel er
gert, og óánægju sína yflr hinu, sem
áfátt kann að vera.
Islendingar get.a ekki búist við að
fá oft nýja biblíuþýðingu á 4 ára
fresti (eins og 1908 og 1912). Vjer
verðum sjálfsagt alllangan tíma að
búa að þessari síðustu biblíuþýðingu
og þeirri vasaútgáfu biblíunnar, senr
nú er verið að prenta.
En það ber vel að vanda, sem
lengi á að standa, og því var sann-
arlega ástæða til að ræða þessa síð-
ustu þýðingu bæði í blöðunum og á
prestafundum áður en farið var að
prenta vasaútgáfuna. Enda hefði sjálf-
sagt verið gefið tóm til þess, ef þýð-
endunum hefði ekki verið fullkunnugt
um tómlæti presta og safnaða í þess-
um efnum, og hefur þeim því ekki
þótt ástæða til að vera að bíða eftir
þeim fáu, sem láta sér biblíuþýðing-
ar nokkru skifta, heldur létu sér vel
líka, að byrjað væri á prentun vasa-
útgáfunnar jafnskjótt og hin væri
fullprentuð, og það áður en þorri