Nýtt og gamalt - 01.01.1914, Blaðsíða 18
16
(í 16 ár) við háskóla prótestanta í
Dublin, segir um dr. Burgon, að hann
eigi heimtingu á að vera talinn með-
al úrvalsmanna í þessum fræðum,
því að hann sje kunnugur öllum ó-
líkum lesháttum, og hafl sennilega
borið saman miklu fleiri handrit en
Westcott og Hort. — Sjálfur skrif-
aði og Salmon aðflnningar við texta-
ransóknaraðferð þeirra W og H.
(Thoughts on the Textual Criticism
of the N. T. 1897). En það er að-
ferðin eða meginregiurnar, sem mest
er undir komið í þessum eínum. —
W. og I-T. kannast við að Krysóstomus
og fleiri Antíokkíu-guðfræðingar á 4.
öld hafi haft sama texta í öllu veru-
legu, og algengastur var til skamms
tima, og hafl þar stuðst við jafn-
gömul eða eldri handrit en þau elstu
handrit, sem nú eru til af gríska
nýja testamentinu, svo að það er ekki
aldur handritanna einsamall, sem
sker úr hvað rjettast sje, þar sem
um mismunandi lesmáta er að ræða.
Jeg hefi sagt frá þessu hjer til
þess að benda mönnum á að það
þarf ekki að vera nein vísindaleg
goðgá nje sjerviska þótt jeg kunni
síðar að flnna að því hvað ísl. þýð-
endurnir hafa fylgt W. og H. trúlega
víðast hvar. — Hitt býst jeg ekki
við, að hjer verði rúm til að rökræða
textaransóknirnar, þótt það væri að
að mörgu leyti hugðnæmt efni.