Nýtt og gamalt - 01.01.1914, Síða 20
18
W. og H. þessum sömu orðum (á
mig) úr orðum Jesú hjá Jóh. 6. 47.
— Jesús er þar nú látinn segja:
„Sá, sem trúir, hefur eilíft líf“.
Úrfellingu þessa styðja 2 elstu
handritin grísku, sem fyr eru nefnd,
og 2 önnur, annað frá 5. og hitt
frá 8. öld, en öli önnur eldri og
yngri handrit, elstu þýðingar og margir
kirkjufeður styðja hitt, að Kristur
hafi þá sem oft endranær, sagt: „Sá,
sem trúir á mig, hefur eilíft líf“
(Sbr. Godet: Jóh. Evangelíum II. b.
420, bls. Kbh).
Mjer datt fyrst í hug, þegar jeg
sá þessa úrfellingu, sem raunar er
líka í þýðingunni frá 1908: Nú tek-
ur einhver þessa setningu út úr öllu
sambandi og „sannar" með henni
að setningin fræga: „Hver verður
sæll við sína trú“, sje byggð á þesp-
urn orðum, og sje þannig komin frá
Jesú sjálfum. — Ef svo væri, þá
þyrfti engan að furða, þótt prófessor
Jón Helgason skrifl í Kristnisögu
sinni (33. bls.):
„Nýtt trúarfjelag hefur Jesús ekki
haft í hyggju að stofna, heldur hefur
hann viljað koma á fót nýjum
sáttmála millum Guðs ogmanna".
— Og litlu síðar: „Yfirhöfuð að tala
hefur hann engar ráðstafanir gert að
því er snertir framtíð lærisveina
sinna á jörðunni".
Þeir hafa þó ekki slept Matt. 28.