Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Blaðsíða 23
Heimsóknir til HÍ og HR
Forystumenn VFÍ og SV fóru sameiginlega í heimsókn til fyrsta árs nemenda í
Verkfræðideild HÍ til að kynna þeim félögin. í febrúar 2007 var stofnað félag verk-
fræðinema við HR. Nemendur tækni- og verkfræðideildar voru einnig heimsóttir af
forystumönnunum til að kynna félögin. Haustið 2006 var tekið á móti meistaranemum
verkfræðideildar HI og þriðja árs nemum verkfræðideildar í febrúar 2007.
Vinna nemenda við félagakerfið
Verkfræðingafélagið hefur fengið nemendur á þriðja ári við verkfræðideild Háskóla
íslands til að vinna ýmis störf, m.a. að skráningu og leiðréttingum í félagakerfinu. Þessi
vinna hefur verið lióur í fjáröflun vegna útskriftarferða verkfræðinema. A þessu ári eins
og því síðasta unnu nemendur að úttekt á því hvað yrði um þá sem ljúka BS-prófi í verk-
fræði, hvort þeir héldu áfram námi eða færu beint á vinnumarkaðinn. Stefnt er að því að
úrvinnsla hefjist strax að vinnu nemenda lokinni. Reikna má með því að að samstarf við
nemendur verkfræðideildar HR verði með svipuðu sniði og samstarfið við HÍ. Þannig
verður verkfræðinemum í HR boðið í Verkfræðingahús og þeir geta leitað til félagsins um
verkefni til að afla fjár í útskriftarferðir.
Rafmagnsverkfræðingur ársins
Sigmar Guðbjörnsson, framkvæmdastjóri Stjörnu-
Odda, var á árinu 2006 útnefndur „rafmagnsverk-
fræðingur ársins". Um er að ræða sameiginlega
viðurkenningu Verkfræðingafélags íslands og IEEE,
alþjóðlegs félags rafmagnsverkfræðinga sem er með
um 350 þúsund félagsmenn í yfir 150 löndum.
Stjörnu-Oddi sérhæfir sig í þróun rafeindamæli-
tækja til fiski- og hafrannsókna. Fyrirtækið hefur
m.a. þróað merki sem getur staÓsett sjávardýr.
Merkjunum, sem eru þau minnstu sinnar tegundar í
heiminum, er komið fyrir á sjávardýrum og mæla
umhverfisþætti sem eru geymdir í minni. Tæknin er
byltingarkennd að því leyti að merkin geta tekið við
staðsetningarupplýsingum frá sónartækjum í skip-
um og skráð þær á sambærilegan hátt og aðrar
upplýsingar. Að auki hefur fyrirtækið þróað búnað
til að safna gögnum um dýpt, hita og seltu sjávar.
Þetta var í fyrsta sinn sem rafmagnsverkfræðingur
ársins var útnefndur hér á landi. Markmiðið er m.a.
að vekja athygli á árangri verkfræðinga í starfi og
afrekum þeirra sem vert er að halda á lofti.
Verðlaunin eru veitt þeim rafmagnsverkfræðingi
sem hverju sinni þykir skara fram úr í störfum
sínum á sviði rafmagnsverkfræði eða fyrir íslenskt
samfélag. Verðlaunin verða veitt annað hvert ár.
Styrktarsjóður J.C. Möller
Reglur sjóðsins kveða á um að öllu jöfnu skulu rafmagnsverkfræðinemar í lokaáföngum
við DTU ganga fyrir varðandi styrkveitingu úr sjóðnum. í ár bárust sjö umsóknir og var
Þorsteini Má Arinbjarnarsyni, nemanda við DTU, veittur styrkur úr sjóðnum að fjárhæð
Dkr. 10.000. Frá stofnun sjóðsins árið 1938 hafa alls 56 verkfræðinemar hlotið styrk.
Frá vinstri: Kristinn Andersen, formaður IEEE á
Islandi, LewisTerman.fulltrúi IEEE, Antony C.
Davis, fulltrúi IEEE, Sigmar Guðbjörnsson,„raf-
magnsverkfræðingur ársins", Steinar
Friðgeirsson, formaður VFl, og Þorvarður
Sveinsson, formaður RVFl.
(Ljósm. Sigrún S. Hafstein)
Félagsmál Vfl/TFÍ
2 1