Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Blaðsíða 269
Niðurstöður
Alls hefur nú verið mæld svörun fjögurra göngubrúa á höfuðborgarsvæðinu vegna um-
ferðar gangandi og hlaupandi vegfarenda. Megin niðurstöður þeirra mælinga má sjá í
töflu 7.
Tafla 7:Samantekt á mældri svörun göngubrúa yfir Hringbraut og Miklubraut fyrir mismunandi álag.
Göngubrú Hringbraut við Njarðargötu Mæld eigintíðni 2,3 Hz 1 gangandi 0,45 m/s2 Mæld svörun 2 gangandi 1 hlaupari 0,72 m/s2 0.70 m/s2 2 hlauparar 1,44 m/s2 Staðalkröfur amax 0,76 m/s2
Hringbraut við Landspítala 3,0 Hz - - 1,02 m/s2 1,71 m/s2 0,87 m/s2
Miklabraut við Grundargerði 2,7-2,8 Hz 0,67 m/s2 - 3,76 m/s2 - 0,82 m/s2
Miklabraut við Rauðagerði1 2,7 Hz 0,26 m/s2 0,58 m/s2 0,95 m/s2 3,66 m/s2 0,82 m/s2
1 sjá [Snæbjörnsson & Sigbjörnsson, 1999] k >
Mæld svörun göngubrúar yfir Hringbraut við Njarðargötu er innan við staðalviðmið
fyrir einn gangandi vegfaranda þó að lóðrétt eigintíðni brúarinnar sé nálægt tíðni gang-
andi vegfarenda. Staðalkröfurnar eru eingöngu háðar eigintíðni brúarinnar og gilda fyrir
einn gangandi mann samkvæmt skilgreiningu í staðlinum.
Mæld svörun göngubrúar yfir Miklubraut við Grundargerði er innan við staðalviðmið
fyrir einn gangandi vegfaranda.
I töflu 7 má sjá að mæld svörun fyrir einn hlaupara er lítillega ofan við staðalkröfur fyrir
göngubrú yfir Hringbraut við Landspítala og fyrir brú yfir Miklubraut við Rauðagerði.
Fyrir brú yfir Hringbraut við Njarðargötu er mæld svörun innan við staðalkröfur. Fyrir
göngubrú yfir Miklubraut við Rauðagerði (við Hagkaup) þá er mesta mælda hröðun fyrir
einn hlaupara meira en fjórfalt hærri en staðalkröfur (3,76 m/s2) enda eru hreyfingar í
þeirri brú mjög greinilegar.
Mæld svörun brúnna tveggja við Hringbraut reyndist samræmast vel við reiknaða
svörun í reiknilíkani. Þó var töluverð dreifing á niðurstöðum mælinganna sem skýrist af
því hversu breytileikinn í álagi frá einum gangandi manni er mikill. Einfaldar hönnunar-
aðferðir falla jafnframt vel að niðurstöðum tímaraðagreiningar fyrir álagslíkön fyrir
gangandi vegfarendur í reiknilíkani og samkvæmt því mætti nýta sér einfaldar hönnun-
araðferðir á forhönnunarstigi.
Tafla 8: Mæld svörun göngubrúaryfir Hringbraut við Njarðargötu fyrir hópálagi (26 manns). \
Hröð ganga (ca.2,3 Hz) Hægt skokk (ca. 2,3 Hz) Hratt skokk (ca. 2,6 Hz) Gengið í hringi á aðalhafi (ca.2,6 Hz) V 0,93 m/s2 1,12 m/s2 0,99 m/s2 1,06 m/s2 Mesta mælda hröðun í tveimur mælingum Mesta mælda hröðun í tveimur mælingum Mesta mælda hröðun í tveimur mælingum Mesta mælda hröðun í 2 min. mælingu
í töflu 8 má sjá niðurstöður þar sem hópur gekk og hljóp yfir göngubrú yfir Hringbraut
við Njarðargötu. Athyglivert er að 26 manna hópurinn sem hleypur með tíðni jafnri
eigintíðni brúarinnar gefur minni svörun heldur en 2 hlauparar á sömu tíðni. Skýringin
á því er sú að erfitt er fyrir allan hópinn að halda sama takti og því verður svörunin
minni.
Þrjú af fjórum markmiðum sem sett voru fram í upphafi verkefnisins náðust, þ.e. þau
reiknilíkön sem notuð hafa verið voru staðfest, staðfest var að hreyfingar brúarinnar
væru innan settra marka og mikil þekking hefur orðið til varðandi notkun sveiflu-
greiningar við hönnun göngubrúa sem mun nýtast mjög vel við hönnun í framtíðinni.
Fjórða markmiðið var að skilgreina hönnunarviðmið fyrir sveifluhegðun göngubrúa og
er sú vinna hafin í samráði við brúadeild Vegagerðarinnar.
Ritrýndar vísindagreinar i 267