Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Blaðsíða 317
ORKUSPAR
Smíði togarahermis með
tilliti til orkuhagkvæmni
Emil Ragnarsson lauk fyrrihlutaprófi I vélaverkfræði frá Háskóla islands 1969 og civ.ing. prófi í skipaverkfræði frá DTH í
Kaupmannahöfn 1972. Deildarverkfræðingur hjá tæknideild Fiskifélags (slands og Fiskveiðasjóðs fslands 1972-1996.
Sjálfstætt starfandi verkfræðingur frá 1996;stofnaði VER Skiparáðgjöf ehf.Stundakennari við sjávarútvegsdeild og
síðar auðlindadeild Háskólans á Akureyri 1993-2003. Lektor við auðlindadeild og síðar viðskipta- og raunvísindadeild
HA frá 2004.
Inngangur
Á árunum 2001-2003 var unnið að rannsóknaverkefninu Orkuspar - The Energy
Efficiency Improvement Simulator; fjölþjóðleg verkefni sem hafði það að markmiði að
bæta orkunýtingu í fiskiðnaði bæði til lands og sjávar og við sjóflutninga, styrkt af Evrópu-
sambandinu. Afrakstur verkefnisins var Orkuspar-orkuhermir, sem skiptist í þrjá hluta:
1. Orkuspar-Orkuhermir fyrir fiskiskip
2. Orkuspar-Orkureiknir fyrir flutningaskip
3. Orkuspar-Orkureiknir fyrir bolfiskvinnslu
Þátttakendur í verkefninu hérlendis voru Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Tækni-
háskóli íslands og Orkustofnun, auk þess sem Grandi hf. og Skipatækni ehf. tengdust
verkefninu sem mögulegir notendur. Þá tóku þátt í verkefninu stofnanir frá Svíþjóð og
Noregi [7].
Um verkefnið segir svo í lokaskýrslu [7]: „Orkuspar er hugbúnaður sem hægt er að nota
til að endurbæta orkunotkun og minnka magn gróðurhúsalofttegunda frá fiskiskipum,
flutningaskipum og bolfiskvinnslu. Hugbúnaðurinn reiknar út heildarorkunotkun, orku-
notkun miðað við mismunandi aðgerðir og sýnir um leið hvernig hægt er að minnka
notkunina." Um notagildið segir svo í skýrslunni: „Orkuspar er sérstaklega ætlaður
stjórnendum fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækja, skipahönnuðum, sjóflutningsfyrir-
tækjum, rannsóknastofnunum í fiskiðnaði, tækniskólum og háskólum."
VER Skiparáðgjöf ehf. fékk það verkefni á miðju ári 2001 að hanna reiknilíkan fyrir
verkefnishluta 1, Orkuhermi fyrir fiskiskip, og lauk því verkefni haustið 2002. Lítið hefur
verið fjallað um bakgrunn hermis, hvernig hann er uppbyggður, á hverju hann byggir, og
er grein þessari ætlað að bæta úr því.
Greining verkefnis í upphafi
Fiskveiðar geta verið flókið fyrirbæri, þar spila saman skip, vélbúnaður og veiðarfæri.
Það eru margir þættir sem hafa áhrif á orkunotkunina. Algengt aðgerðamynstur
fiskiskips er eftirfarandi: Siglt á fiskimiðin, fiskileit, veiðar, vinnsla afurða, varðveisla afla
og afurða um borð, siglt í höfn og landað.
T æ k n i - o g
indagreinar i315