Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Blaðsíða 249
Hér hefur verið sýnt að aðferðin getur á tiltölulega auðveldan hátt gefið mat á vatnsriti í
farvegi þar sem lítil landfræðileg gögn liggja fyrir út frá mældu vatnsriti á öðrum stað í
farveginum. í þessu tilfelli má síðan nota reiknaða vatnsritið við jökuljaðarinn til að spá
fyrir um hegðun hlaupvatnsins undir jöklinum.
Niðurstöður
Sett hefur verið fram aðferð til að rekja flóð í farvegi þar sem takmörkuð gögn liggja fyrir.
Prófun á aðferðinni sýnir að hægt er að ná fram viðunandi niðurstöðum en þó er ljóst að
ákveðin óvissa fylgir niðurstöðunum sökum einfaldleika aðferðarinnar. Kostur HEC-
RAS forritsins er að hægt er að keyra það án þess að afla dýrra mælingagagna og getur
því sparað mikinn tíma sem annars færi í að skrá farvegi nákvæmlega og búa til
nákvæmar flóðrakningarspár í kjölfarið. Því opnar það möguleika að geta spáð fyrir um
rennsli og um leið vatnshæð á ódýran og einfaldan hátt ef vatnsrit er þekkt einhvers
staðar í farveginum.
Til að HEC-RAS gefi eins nákvæmar upplýsingar og mögulegt er, er mælt með því að
nota alltaf bestu mögulegu kortin við notkun á aðferðinni. Betri kort gefa nákvæmari
farveg sem um leið skilar af sér betri niðurstöðum.
I framhaldi þessa verkefnis væri áhugavert að prófa fleiri flóðatburði í Neðri Þjórsá auk
þess að fá ítarlegri rennslisgögn. Að auki væri hægt að prófa að nota GPS-mælitæki til að
mæla nokkra landpunkta í farvegi Skaftár og bera þá saman við líkanið af halla farveg-
arins. Þess utan mætti prófa fleiri farvegi og fínpússa aðferðina betur út frá þeim. í kjöl-
farið væri hægt að meta kosti og galla við mismunandi aðstæður og athuga hvort ástæða
væri til að breyta einhverju í aðferðinni.
Starfsmenn Orkustofnunnar, Landsvirkjunar og VST fá þakkir fyrir veitta aðstoð. Verkefnið er
styrkt afRannís sem hluti af verkefninu Öryggi vatnavirkja.
Heimildir
[1] Barnes (1967). Roughness Characteristics of Natural Channels. U.S.Geological Survey Water-Supply Paper 1849.
[2] Bjarni Kristinsson (2005). Rennslismælingar f vestari kvísl Skaftár við vhm 470 og samanburður við rennsli Skaftár hjá
Sveinstindi.Mhm 166,árin 1997-2004,3601 OSTGRG BK-2005/01.
[3] Blackburn, J. og Hicks, F. E. (2002). Combined Flood routing and flood level forecasting. Canadian Journal of Civil
Engineering, 29 (1), 64-75.
[4] Chow.V.T. (1959).Open-Channel Hydraulics (2nded.J. McGraw-Hill Book Company Inc.
[5] Gerhart, P. M„ Gross, R. J.og Hochstein, J. 1.(1993). Fundamentals of Fluid Mechanics (2nded.) Addison-Wesley.
[6] Hicks, F.E. (1996). Hydraulic Flood Routing with Minimal Channel Data: Peace River, Canada. Canadian Journal of Civil
Engineering, 23(2), 524-535.
[7J Hicks, F.E. and Peacock.T. (2005) Suitability of HEC-RAS for Flood Forecastin. Journai of the Canadian Water Resources
Association, 30(2); 159-174.
[8] Kortaskjár Landmælinga (slands (2007). Landmælingar Islands. Veffangið er: http://www.lmi.is/landmaelingar.nsf/-
pages/kortaskjar.html.
[9] Laufey B. Hannesardóttir (2007). Flóð I Þjórsd I desember 2006. Málstofa í Umhverfis- og byggingarverkfræði.
Verkfræðideild Hl.
[10] Orkustofnun og fslenskar orkurannsóknir (2007). Gagnavefsjá Orkustofnunar og (slenskra orkurannsókna. Veffang:
http://www.gagnavefsja.is.
111] Sveinbjörn Jónsson, 2007. Flóðrakning með takmörkuðum gögnum. M.S. verkefni við verkfræðideild Háskóla Islands.
[12] USGS (2007). SURFACE-WATER FIELD TECHNIQUES, Verified Roughness Characteristics ofNatural Channels.Tekið af vef-
síðu http://wwwrcamnl.wr.usgs.gov/sws/fieldmethods/lndirects/nvalues/index.htm þann 17.janúar 2007.
[13] Vatnamælingar Orkustofnunnar (2007).SÍmotengtmæ//kerfí.Veffang:vmkerfi.os.is.
Ritrýndar vísindagreinar
2 4 7