Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Blaðsíða 277
Niðurstöður líkantilrauna sýna að við viðmiðunarmörk fyrir ölduhæð og sjávarstöðu er
kennialdan við sandrifið um 4 m á meðalflóði og á meðalsjávarhæð og um 3,5 m hæð á
meðalfjöru, samanber töflu 1. Fjöldi alda sem brotnar á sandrifinu er um 6% á meðalflóði
og meðalsjávarhæð og um 9% á meðalfjöru. Aldan framan við hafnarmynnið verður um
3,0 m á hæð.
Stærð Bakkaferju og aðstæður við Bakkafjöru spila saman
Þegar ferjan fer frá Bakkahöfn og aldan er við viðmiðunarmörk siglir ferjan fyrst í þriggja
metra hárri öldu fyrir utan hafnarmynnið yfir álinn og þaðan yfir hrygginn en þar er
minnsta dýpið frá 6,5 m á meðalfjöru upp í 8,3 m á meðalflóði, og í 4 m öldu á um 300 m
kafla. Við mat á gerð ferjunnar er tekið mið af sjólagi milli Bakkafjöru og Eyja þegar
ölduhæð er 3,5 m utan við Bakkafjöru. Ölduhæð milli Bakkafjöru og Eyja er þá 5,0 m í
vestlægum áttum, 4,1 m í suðvestlægum áttum, 3,3 m í suðlægum áttum og 4,1 m í
suðaustlægum áttum. Einnig er tekið mið af sjólagi milli Þorlákshafnar og Eyja við sömu
aðstæður utan við Bakkafjöru en gert er ráð fyrir að ferjan geti þurft að sigla til
Þorlákshafnar. Þegar ölduhæð er 3,5 m utan Bakkafjöru er ölduhæð á milli Eyja og
Þorlákshafnar 5,0 m í vestlægri átt, 7,9 m í suðvestlægri átt, 5,3 m í suðlægri átt og 3,0 m í
suðaustlægri átt.
Gert er ráð fyrir að lengd skipsins verði 62 m, breidd þess verði 15 m og djúprista 3,3 til
3,5 m. Lagt er til að skipið verði búið tveimur vélum og vélarafl verði a.m.k. 2 x 1.500 kW.
Hraði á siglingu verði 15 sjómílur, siglingatími milli Bakkafjöru og Eyja verði rúmar 30
mínútur og hleðslutími um 20-30 mínútur. Hver hringur gæti þannig verið 2 til 21/2 klst.
og rekstrartími því 8-15 klst. á sólarhring. Til samanburðar er skipslíkanið hlutfallslega
um 50 m langt, 11 m breitt og með 4 m djúpristu.
Með því að taka mið af aðstæðum er hægt, við hönnun stefnisins á ferjunni, að halda
lóðréttri hröðun þess innan ásættanlegra marka. Þannig gerir ISO 2631 staðallinn ráð fyrir
að um 10% farþega verði sjóveik í hálftíma siglingu þegar lóðrétt RMS hröðun er 0,1 g á
tíðnibilinu 0,1 Hz til 0,315 Hz eða frá 3,2 sek. upp í 10 sek. Væntanlega verður ferjan búin
andveltitanki til að draga úr veltingi á siglingu.
Rannsóknir hafa staðfest að öryggi skipa í brotöldu er beinlínis háð stærð skipsins. Því
stærra sem skipið er þeim mun öruggara er það í brotöldum. Aætlað er að særými nýrrar
ferju verði að minnsta kosti 2000 tonn en stærð líkansins sem viðmiðunarmörkin eru
miðuð við er um 1350 tonn. Til samanburðar er særými 25 m fiskiskips um 200 tonn en
það er sú stærð skipa sem sjómenn vitna gjarnan til í umræðum um Bakkafjöruhöfn og
siglingar þangað.
Frátafir
Athuganir á veðri og sjólagi og áætlanir um stærð og gerð ferju gefa það til kynna að yfir
sumarið, frá maíbyrjun til ágústloka, verði ekki tafir eða ferðafall á siglingum Bakkaferju.
Yfir háveturinn gæti tíðni frátafa orðið ívið meiri en nú eru á ferðum Herjólfs milli
Vestmannaeyja og Þorlákshafnar en þar sem heildartíðni ferða verður að minnsta kosti
tvöföld frá því sem nú er verður afar sjaldgæft að allar ferðir dagsins falli niður.
Möguleikar á því að komast sjóleiðina milli lands og Eyja einhvern tíma dagsins munu
því aukast.
Öldurannsóknir
Ölduhæð undan suðurströnd íslands er með því mesta sem gerist. Þar hefur mælst tæp-
lega 17 m há kennialda (meðaltal þriðjungs hæstu alda) og hæsta alda yfir 25 m á
öldudufli hefur mælst við Surtsey. Upplýsingar um ölduhæð og öldufar eru forsendur
þess að reikna megi efnisburð við strandlengjuna, frátafir á siglingaleiðum og grunnur að
Tækni- og vísindagreinar
2 7 5