Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Blaðsíða 32
Tæknidagarnir voru haldnir í Öskju, náttúru-
fræðahúsi Háskóla Islands.
Daði Ágústsson, formaður Tæknidags-
nefndar.og Sturla Böðvarsson,tækni-
fræðingur og samgbngumálaráðherra.sem
flutti ávarp og setti Tæknidaga 2006.
(Ljósm. Sigrún S. Hafstein)
Tæknidagar 2006
TFÍ og VFÍ stóðu fyrir Tæknidögum 2006 dagana
14.-16. september 2006. Tæknidagarnir voru haldnir
í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla íslands, og þóttu
takast vel. Tæknidagar eru haldnir annað hvert ár
og er markmiðið að kynna tækninýjungar og þá
tækniþekkingu og hugvit sem íslensk fyrirtæki og
starfsmenn þeirra búa yfir. Að þessu sinni voru
Tæknidagarnir helgaðir fjarskiptum og upplýsinga-
tækni undir yfirskriftinni „Hvað ber framtíðin í
skauti sér?" Tilefnið var að 100 ár voru liðin frá því
að sæsímastrengur var lagður til íslands og símalína
frá Seyðisfirði til Reykjavíkur.
Glæsileg sýning var sett upp og margir áhugaverðir
fyrirlestrar fluttir um nútíð og framtíð fjarskipta og
upplýsingatækni. Sýnendur á Tæknidögum 2006
voru Síminn, Og Vodafone, Microsoft, Orkuveita
Reykjavíkur, Flugmálastjórn, Nýherji, Hnit,
Rafhönnun, Stiki, Vista, CCP, Háskóli Islands og
Háskólinn í Reykjavík.
Samstarf TFÍ, VFÍ og Stéttarfélags verkfræðinga
Frá því að TFÍ flutti starfsemi sína í Verkfræðingahús 1994 hefur samstarfið vaxið jafnt og
þétt. Nýjar samstarfsnefndir taka að sér fjölbreytt verkefni og er það vel. Uppskeran er
þróttmikið starf og aukinn kraftur í starfsemi beggja félaga. Ráðgert er að samstarf SV við
VFÍ og TFÍ varðandi skrifstofureksturinn o.fl. verði eflt.
Nánara samstarf TFÍ, VFÍ og SV
Niðurstaða í sameiningarmálum TFI, VFI og SV lá fyrir í febrúar 2006. Góður meirihluti
var fyrir sameiningu í öllum félögunum. Þar sem aukinn meirihluta (67%) þurfti til að af
sameiningu yrði dugði það ekki því 58% félagsmanna VFI samþykktu sameininguna.
Forustumenn félaganna voru sammála um að niðurstöðurnar bæri að túlka sem slíkar að
efla ætti samstarf félaganna frekar en nú er, t.d. með sameiginlegum rekstrarsamningi
félaganna þriggja um skrifstofureksturinn. Þar yrði byggt á þeirri miklu vinnu sem unnin
var í tengslum við sameininguna.
Sjóðir Kjarafélags Tæknifræðingafélags íslands (KTFÍ)
A síðustu árum hafa sjóðir KTFÍ verið að eflast og umsvif starfsemi þeirra aukist. Stjómir
sjóðanna samþykktu því að taka aukinn þátt í samrekstri VFÍ/TFÍ.
Fundirog ráðstefnur
Fjöldi funda, skoðunarferða og ráðstefna hafa verið haldnar á vegum félagsins og er það
merki um öflugt og fjölbreytt starf. Nánara samstarf TFÍ, VFÍ og SV hefur verið í brenni-
depli umræðunnar ásamt menntunarmálum tæknifræðinga og verkfræðinga. Auk sam-
lokufunda, sem haldnir eru að jafnaði fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði, voru haldnir
morgunverðar- og hádegisverðarfundir um fjölbreytt efni. Á vegum deilda var farið í
heimsóknir til fyrirtækja og í skoðunarferðir.
3 01 Árbók VFl/TFl 2007