Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Blaðsíða 363
Gufuhverflar
Frá rakaskiljunni er gufan leidd að hverflinum. Þar
fer hún fyrst í gegnum grófsíu með 5-6 mm götum,
en það getur komið sér vel ef vírtróðið í rakaskilj-
unni losnar. Leið gufunnar inn í hverfil liggur í
gegnum tvo loka. Sá fyrri er hraðloki, sem lokar fyrir
gufustreymið þegar vélin „trippar", þ.e. í neyðar-
stöðvun. Síðan tekur stjórnlokinn við, en honum er
stjórnað af sjálfvirku stýrikerfi vélarinnar. í venju-
legum rekstri er ákveðið afl stillt inn, sem stýrikerfið
sér svo um að halda. Ef gufuþrýstingur fer niður
fyrir ákveðið lágmark, breytist stýringin þannig að
afl vélarinnar er lækkað til þess að halda lágmarks-
gufuþrýstingi.
Þegar ákveðið hafði verið að fara með skiljuþrýsting | véiasamstæða, rafaii t.v., hverfiii thj
í 18 bör var ljóst að í síðasta þrepi hverfilsins yrði
bleyta í gufunni meiri en gengur og gerist í gufu-
hverflum. Rakahlutfallið er um 17%, en það merkir að við höfum tæp 14 kg/s af vatni á
miklum hraða, kannski 1000 km/klst, þokkaleg slagveðursrigning það. Hugsið ykkur
bara að skvett sé úr 14 mjólkurfernum af vatni á sekúndu á þúsund kílómetra hraða! Við
höfðum því áhyggjur af slittæringu (erosion) á síðasta þrepi hverfilsins. Var því ákveðið
að fara frekar í tvístreymisvél (double flow vél) til þess að minnka þessa hættu á vatns-
dropasliti. En þetta hækkaði verðið um hátt í 25%.
Eins og áður sagði eru hverflarnir á Reykjanesi þannig að gufan er leidd inn á ásinn
miðjan og streymir síðan til beggja handa í gegnum 14 þrep. A leiðinni þenst gufan út og
kólnar, en aflið er
P — ))í x (hjnn — hjjj jg) x T]js
Afl hverfilsins er reiknað sem breyting í vermi margfaldað með massastreyminu og
ísentrópískri nýtni.
P: afl hverfils [kWj
m: massastreymi [kg/s]
/),„„: vermi gufu við inntak í hverfil [kj/kg]
/)„-( ,'s: ísentrópiskt vermi gufu út úr hverfli [kj/kg]
7j,-s: ísentrópisk nýtni hverfils er skilgreind sem
r Tafla 2: Upplýsingar um vélasamstæðu. \
Uppsett afl hverfils með yfirafli: 55 MW
Framleiðandi: Fuji Electric Systems
Snúningshraði: 3000 snún/mín
Inntaksþrýstingur, hiti: 18 bör, 209,8°C
Bakþrýstingur,hiti: 0,1 bara, 45,1°C
Þrep: 14 reaction
Gufunotkun: 80 kg/s við 50 MW
Rafali: 62,5 MVA, burstalaus segulmögnun
Spenna: 16,5 kV
Straumur: 2187 A
Cosrp: 0,8
k J
Tækni- og vísindagreinar i 3 6 1