Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Blaðsíða 265
þar sem xn er sveifluútvikið við sveiflutopp n og xn+m er sveiflu-
útvikið m toppum síðar í tímaröðinni. Jafna (11) var notuð til að
meta deyfinguna fyrir nokkrar mismunandi tímaraðir Meðalgildi
deyfingarinnar úr 6 tímaröðum er £ = 0,0059 eða 0,6% af krítísku
deyfingarhlutfalli og ber að líta á þetta sem deyfingarhlutfall
brúarinnar fyrir fyrsta lóðrétta sveifluformið, þ.e. við 2,3 Hz.
Svörun: Mælt var á þremur stöðum á lengsta hafi brúarinnar sem
er 27,1 m. Mælt var á miðju hafi bæði í innri og ytri hring (austan
og vestan megin) og í fjórðungspunkti hafsins að utanverðu (vestan
megin).
Fyrir stakan gangandi vegfarenda voru gerðar 24 mælingar við mis-
munandi göngutíðni og mældist hröðun á bilinu 0,11-0,42 m/s2
háð göngutíðninni. Mynd 5 sýnir mestu hröðun brúarinnar
fyrir alla þátttakendur þar sem búið er að kvarða svörunina
miðað við þyngd einstaklingsins, þ.e. hröðunin er gefin
sem m/s2 pr. kN. Fyrir tvo gangandi vegfarendur mældist
svörun á bilinu 0,19-0,71 m/s2 háð göngutíðninni (mynd 7).
Dæmi um tímaröð fyrir mælingu þar sem tveir vegfarendur
ganga saman á eigintíðni brúarinnar er sýnd á mynd 6.
Svörun brúarinnar við hlaupaálagi var einnig metin og
fyrir stakan vegfaranda mældist hröðun á bilinu 0,18-0,69
m/s2 háð hlaupatíðninni, sjá mynd 5. Fyrir tvo hlaupara
mældist hröðunin á bilinu 0,27-1,43 m/s2, sjá mynd 7.
Gerð var hóptilraun þar sem 25 nemendur úr Háskóla íslands tóku
þátt (24 menn og 1 kona). Tvívegis var mælt þar sem hópurinn
gekk rösklega yfir brúna (göngutíðni ca. 2,3 Hz). Mesta hröðun
mældist 0,90 m/s2 og tímaröðin er sýnd á mynd 8. Einnig var mælt
fjórum sinnum þar sem hópurinn hljóp yfir brúna; tvívegis fyrir
hægt hlaup (ca. 2,3 Hz) og tvívegis fyrir venjulegt hlaup (ca. 2,5 Hz).
Mesta hröðun mældist 1,1 m/s2 og tímaröðina má sjá á mynd 9.
Að lokum var gerð tilraun þar sem hópurinn var látinn ganga í
hringi á aðalhafi brúarinnar í beinni röð. Eina tilraunin sem gerð
var til að stýra hlaupa- og göngutíðni hópsins var að fremsti
maðurinn notaði taktmæli og stýrði þannig hraða hópsins. I töflu 4
má sjá samantekt með niðurstöðum mælinganna.
Mynd 5. Mesta mælda hröðun á miðju aðalhafi
í einstaklingstilraunum. Hröðun er kvörðuð
miðað við líkamsþyngd þátttakenda.
Mynd ó.Mæld hröðun á miðju aðalhafi fyrirtvo menn
sem ganga yfir brú frá súlu #3.
Mynd 7.Mesta mælda hröðun á miðju aðalhafi
fyrir tvo þátttakendur saman.
Tafla 4. Mesta mælda hröðun í hverri seríu.
Fjöldi þátttakenda Tegund Tíðni amax
1 Ganga 2,1-2,4 Hz 0,11-0,42 m/s2
2 Ganga 2,1-2,4 Hz 0,19-0,71 m/s2
1 Skokk 2,2-2,6 Hz 0,18-0,69 m/s2
2 Skokk 2,2-2,6 Hz 0,27-1,43 m/s2
25 Ganga ~ 2,3 Hz 0,90 m/s2
25 Skokk ~ 2,3 Hz 1,09 m/s2
( r
’10 5 10 ~1*6 20 25 30 35 40 45
Mynd 8. Mæld hröðun á miðju aðalhafi fyrir 25 manna
hóp sem gengur rösklega yfir brúna.
( r
\ -'o 6 10 15 i !•) 20 25 30 y
Mynd 9. Mæld hröðun á miðju aðalhafi fyrir 25 manna
hóp sem skokkar hægt yfir brúna.
Ritrýndar vísindagreinar
2 6 3