Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Blaðsíða 72
námu 283 mkr. sem er 73% hækkun frá síðasta ári. Mikil aukning
iðgjalda stafar af ráðstöfun umframframlags til samtryggingar-
deildar í séreign. Lífeyrisgreiðslur námu 5,4 mkr. og hrein eign til
greiðslu lífeyris var 1.400 mkr. í árslok.
Sparnaðarleið 2: Fjárfest er í innlendum og erlendum hluta- og
skuldabréfum. Hlutfall hlutabréfa er á bilinu 30%-60% samkvæmt
fjárfestingarstefnu. I árslok 2006 var samsetning sjóðsins þannig að
13% voru í stuttum skuldabréfasjóði, 32% í peningamarkaðssjóði,
27% í innlendum hlutabréfum og 28% í erlendum hlutabréfum.
Nafnávöxtun séreignarleiðar 2 var 13,6%, umreiknað til ársávöxt-
unar þar sem leiðin fór ekki af stað fyrr en í mars 2006, og hrein
raunávöxtun var 6,2%. Iðgjöld námu 36 mkr. á fyrsta starfsári
leiðarinnar en ekkert var greitt í lífeyri. Hrein eign til greiðslu
lífeyris í árslok var 38 mkr.
Breytingar á samþykktum
A aðalfundi 2007 leggur stjórn sjóðsins til tvær breytingar á samþykktum sjóðsins:
Grein 4.1 verði breytt til að heimila sjóðnum að færa iðgjald sem er umfram lágmarks-
tryggingavernd, sem er 10%, í séreign viðkomandi sjóðfélaga.
Nýrri grein verði bætt inn, grein 19.6., sem er ætlað að auka réttindi eldri sjóðfélaga úr
80% verðtryggingu, eins og kveðið er á um í samþykktum sjóðsins, í 90%. Breytingin
verði ekki afturvirk heldur gildi frá 1. júlí 2007.
Stjórn og starfsmenn
I stjórn eru (kjörtímabili lýkur): Sigurður Ass Grétarsson formaður (2009), Björn Z.
Ásgrímsson varaformaður (2009), Þórir Guðmundsson (2007), Birna Pála Kristinsdóttir
(2008) og Óskar Maríusson (2008). Varamenn: Magnús Bjarnason (2007), Kristján M.
Ólafsson (2009) og Lúðvík Friðriksson (2008).
Stjórnin kom saman 18 sirtnum frá síðasta aðalfundi, þar af voru 15 hefðbundnir stjórnar-
fundir og þrír fjárfestingarfundir.
Alls voru greiddar 2.819 þúsund krónur í stjórnarlaun á síðasta ári.
Alls störfuðu sex starfsmenn hjá sjóðnum í fullu starfi á síðasta ári. í febrúar var ráðinn
nýr starfsmaður í fullt starf.
Starfsmenn sjóðsins í árslok 2006 voru: Stefán Halldórsson framkvæmdastjóri, Erla
Sigurðardóttir, iðgjaldaskráning, Guðmundur V. Friðjónsson fjármálastjóri, Jón Tryggvi
Jóhannsson lögfræðingur, Óla Helga Sigfinnsdóttir aðalbókari og Þórhallur S. Barðason,
verðbréfaskráning.
Alls voru greiddar 39.878 þúsund krónur í laun til starfsmanna á síðasta ári.
7 o
Arbók V F ( /T F I 2007