Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Blaðsíða 169
Fjörðurinn var ísi lagður, með um 70 sentimetra
þykkum ís við fjarðarbotn í lok maí. ísinn var fyrst
brotinn með varðskipi, síðan með litlu fraktskipi,
krabbatogara og síðustu 1500 metrarnir voru brotnir
með gröfu á landgöngupramma sem verður að teljast
óhefðbundinn ísbrjótur.
Fyrsta vél kom í land fimmtudagskvöldið 7. júní. A
sama tíma kom vorið snögglega. Isinn hvarf alveg á
vikutíma og gróður og fluga náðu sér á strik með
ótrúlegum hraða fyrir lok júní.
Eftir landtöku fyrstu véla og búnaðar var tekið til við
gerð hafnar- og landtökuaðstöðu, slóðagerð og upp-
setningu á vinnubúðum. Fyrsta gistiaðstaðan var lítið
sumarhús við ströndina, síðan komu skrifstofueiningar
sem raðað var saman til bráðabirgða, eiimig á strönd-
iimi. A þessum tíma var siglt með starfsmenn kvölds og
morgna milli vinnustaðar og Sisimiut. Flutt var inn í
fyrsta 20 herbergja svefnskálann og endanlegt mötu-
neyti 16. júlí eða fimm vikum eftir landtöku.
Á vinnustaðinn þarf að flytja mikið af búnaði til
aðstöðusköpunar og því var stórum áfanga náð þegar
margra vikna undirbúningi að flutningi með leiguskipi
var lokið. Svefnskálar fyrir 66 manns voru lestaðir frá
Aukra í Noregi í 4.200 tonna, 100 metra langt leiguskip
sem sigldi næst til Færeyja. Þar var lestaður jarð-
gangabúnaður sem ÍSTAK hefur notað við gerð veg-
ganga á Suðurey. Síðan var siglt áfram til Reykjavíkur
þar sem einnig voru lestaðar vörur. Fimm dögum síðar
sigldi þetta stóra skip inn í Annan fjörð með um 700
tonn af búnaði og vörum.
Aðstöðusköpun var haldið áfram af fullum krafti allt
sumarið og fram til þessa af kraftmiklum starfsmönnum
undir góðri stjórn reyndra manna. Fyrir svona vinnu-
stað þarf að huga að mörgu og er þar helst að telja:
Svefnskála, mötuneyti, skrifstofu, verkstæði, steypu-
stöð, vatnsveitu, 1,5 MW rafveitu með 11.000 Volta
dreifikerfi. Allur frágangur þarf að miðast við heim-
skautaaðstæður, en frost getur farið niður í -30 gráður
og ekki dugar að grafa vatnslagnir í jörðu til að frost-
verja því sífreri getur náð niður á sex metra dýpi.
Vatnslagnir eru því lagðar í foreinangraðar og raíhit-
aðar vatnspípur. Steypustöð er komið fyrir inni í upp-
hitaðri og einangraðri skemmu. Þar verða fylli- og
íblöndimarefni sprautusteypu eirmig geymd frostlaus.
Rafstöðvum, rafspennum, vatnstönkum, vatnsdælum
og rotþró er einnig komið fyrir inni í skýlum til þess að
tryggja rekstraröryggi yfir harðasta vetrartímann. Þegar
þetta er skrifað, um miðjan október 2007, er aðstöðusköpun
að mestu lokið þótt ennþá sé eftir nokkur frágangsvinna.
Vinna við verkið hófst samhliða aðstöðusköpun með
því að gröftur fyrir aðkomubyggingu hófst 18. júní 2007
og fyrsta klöppin var sprengd 12. júlí.
Félagsmál Vfl/TFl |167