Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Blaðsíða 35
1.3.2 Skýrslur sameiginlegra nefnda TFÍ/VFÍ
starfsárið 2006-2007
Útgáfunefnd VFl' og TFÍ 2006
Starfsemi útgáfunefndar hefur verið með venjubundnum hætti á starfsárinu og ekki hafa
verið gerðar breytingar í nefndum eða ritstjórastörfum. Fulltrúar í nefndinni hafa verið
Ólafur Pétur Pálsson (formaður), Kristinn Andersen og Ragnar Ragnarsson (ritstjóri
Arbókarinnar) frá VFÍ og Árni Þór Árnason og Óli Jón Hertervig frá TFI.
Árbók VFÍ/TFÍ 2006 kom út í lok nóvember 2006 og var að þessu sinni ögn stærri en árið
áður eða 368 síður. Árbókin samanstendur af upplýsingum um félagsmál félaganna
tveggja, tækniannál þar sem fjallað er m.a. um þróun efnahagsmála, orkumál, hátækni-
iðnað, upplýsingatækni, vegamál, hafnarframkvæmdir og Jarðhitaskóla Háskóla
Sameinuðu þjóðanna. Því næst eru kynningar og tæknigreinar fyrirtækja og stofnana, í
allt tuttugu og ein. Þá eru átta ritrýndar vísindagreinar birtar, en þetta er vinsæll vett-
vangur fyrir háskólamenn og framhaldsnema til þess að kynna rannsóknir sem tengjast
sviðinu. I skýrslu síðasta árs var sagt frá hugmyndum um að koma á fót, í tengslum við
Árbókina, veftímariti þar sem ritrýndu greinarnar yrðu birtar oftar á ári og e.t.v. einnig í
ítarlegri útgáfu. Þetta er ekki enn orðið að veruleika en verið er að vinna í málinu. Loks
voru í Árbókinni að þessu sinni ellefu tækni- og vísindagreinar um hin fróðlegustu efni.
Ritstjóri Árbókarinnar er eins og undanfarin ár Ragnar Ragnarsson og eru honum
þökkuð góð störf. Fjöldi útgefinna eintaka var 2250.
Verktækni kom út mánaðarlega nema yfir hásumarið, alls 10 tölublöð í um 3000 ein-
tökum. Verktækni hefur verið opinn vettvangur fyrir alla verkfræðinga og tæknifræðinga
til þess að koma sínum sjónarmiðum og hugarefnum á framfæri. Eins eru í Verktækni
birtar fróðlegar greinar um ráðstefnur og skoðanaferðir félaganna auk viðtala um áhuga-
verð efni. Verktækni er einnig vettvangur stjórna félaganna þriggja, VFl, TFI og SV til
þess að koma nauðsynlegum upplýsingum til félagsmanna. Ánægjulegt er að nefna á
þessum vettvangi að nokkrar greinar sem birst hafa í blaðinu hafa vakið athygli annarra
fjölmiðla og ber þar hæst grein um notkun sýndarlíkana við hönnun mannvirkja eftir
Óskar Valdimarsson, forstjóra Framkvæmdasýslu ríkisins, en um þá grein var fjallað í
Ríkisútvarpinu, Morgunblaðinu og fleiri fjölmiðlum. Ritstjórn Verktæki var, eins og
undanfarin ár, í styrkum höndum Sigrúnar Hafstein og er henni þakkað ánægjulegt sam-
starf á liðnu starfsári. í blaðnefnd Verktækni voru þau Sveinbjörg Svemsdóttir frá SV (for-
maður), Ólafur Pétur Pálsson frá VFÍ og Árni Þór Árnason frá TFÍ. Útgáfunefnd þakkar
öllum hlutaðeigandi samstarfið og biður félaga og aðra að koma til hennar ábendingum
og tillögum að því sem ef til vill betur mætti fara.
Ólafur Pétur Pálsson formaður
3 3
Félagsmál Vff/TFÍ