Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Blaðsíða 33
Gerðardómar í mannvirkjagerð - danska leiðin
Ráðstefna um gerðardóma í mannvirkjagerð var haldin af VFI í samvinnu við Samtök
iðnaðarins 29. mars 2006. Endurskoðunarnefnd gerðardóms VFÍ taldi að gerðardómur sá
sem rekinn er fyrir mannvirkjagerð í Danmörku væri áhugaverður fyrir mannvirkjagerð
hér á landi, m.a vegna þess að hann er að upplagi svipaður og gerðardómur VFÍ og hins
vegar vegna þess að hann virðist þjóna vel mannvirkjagerð þar í landi og að almenn sátt
ríkir um þetta fyrirkomulag þar. Framkvæmdastjóra gerðardómsins í Danmörku, Per
Helwigh lögfræðingi, og formanni dómsins, Per Clausen aðstoðarvegamálastjóra, var því
boðið til landsins. Þeir kynntu fyrirkomulagið í Danmörku og hverjir séu að þeirra mati
helstu kostir þess og gallar. Ráðstefnan var vel sótt af þeim aðilum sem tengjast mann-
virkjagerð hér á landi en nokkuð skiptar skoðanir voru meðal fundarmanna um dönsku
leiðina. Niðurstöður endurskoðunarnefndarinnar eru væntanlegar á næstunni.
Stjórn og varnarbúnaður
Ráðstefna um stjórn- og varnarbúnað í íslenska raforkukerfinu á tímum uppbyggingar
var haldin dagana 21. og 22. nóvember 2006. Ráðstefnan er á vegum Norska verk-
fræðingafélagsins, TEKNA (Teknisk naturvitenskapelig forening), og Verkfræðingafélags
íslands. Stjórn- og varnarbúnaður skiptir sífellt meira máli í hönnun og rekstri raforku-
kerfisins, einkum vegna þess að ný flutningsvirki eru ekki byggð til að tryggja öryggi
kerfisins í þeim mæli sem æskilegt er. A ráðstefnunni fluttu íslenskir og erlendir sér-
fræðingar áhugaverða fyrirlestra um þetta málefni.
Hljóðhönnun bygginga
Ráðstefna um hljóðhönnun bygginga var haldin á vegum Faghóps VFÍ og TFÍ um hljóð-
hönnun og Vinnueftirlits ríkisins 30. nóvember 2006. A ráðstefnunni voru flutt fjölmörg
athyglisverð erindi. Einn færasti hljóðsérfræðingur Noregs, Sven Strom, flutti ítarlegt
erindi um hljóðhönnun þar í landi. Hann hefur stýrt hljóðhönnun margra bestu tón-
leikasala í Noregi, m.a. Grieg-hallarinnar í Bergen. Ráðstefnan var fyrsta verkefni
faghópsins sem var stofnaður fyrr á þessu ári. Mikill áhugi er meðal íslenskra sérfræð-
inga á að efla umræðu hér á landi um mikilvægi hljóðvistar. Þess má geta að árið 2008
verður haldin hér á landi Norræn hljóðtækniráðstefna, NAM, sem er virt ráðstefna á
þessu sviði og hefur verið haldin annað hvert ár um áratugaskeið.
Fjölbýli til framtíðar
Fjölbýli til framtfðar var yfirskrift málþings á vegum VFÍ, TFÍ, AÍ, FÍLA og SFFÍ sem var
haldið 18. janúar 2007 í samvinnu við Reykjavíkurborg um gæðamál í hönnun og bygg-
ingu fjölbýlishúsa. Markmið þingsins var að leiða fram nýja þekkingu um fjölbýli, skil-
greina „gæði" íbúða og leita eftir nýjungum í Ijósi þeirrar einhæfni sem einkennir hönn-
un og skipulag fjölbýlisbyggðar á íslandi.
Nýting fallvatna og jarðhita í sátt við umhverfi
Nýting fallvatna og jarðhita í sátt við umhverfi var yfirskrift ráðstefnu á vegum VFÍ og
TFÍ sem haldin var 1. mars 2007 á Grand Hótel Reykjavík. Markmið ráðstefnunnar var að
kynna áhrif hlýrra veðurfars á rennsli fallvatna og nýtingu þeirra og ræða sjálfbæra
nýtingu jarðhita til raforkuframleiðslu, húshitunar og iðnaðar. Markmiðið var einnig að
lýsa rannsóknum vegna rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma, niður-
stöðum mats í 1. áfanga og áformuðu mati í 2. áfanga og ennfremur að lýsa náttúru-
verndaráætlun og þeim rannsóknum sem gera þyrfti hennar vegna og loks að lýsa frum-
varpi um nýtingu auðlinda og ræða áform um langtímaáætlun. Fjölmörg áhugaverð ávörp
og erindi voru flutt á ráðstefnunni. Lauk henni með fjörugum pallborðsumræðum.
3 1
Félagsmál Vfl/TFl