Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Blaðsíða 67
1.8.2 Lífeyrissjóður verkfræðinga
Ávöxtun og tryggingafræðileg staða
Árið 2006 var gott ár í ávöxtun samtryggingadeildar sjóðsins. Fjárfestingartekjur voru
jákvæðar um 3.815 milljónir króna (mkr.). Mestu skiluðu erlend hlutabréf, bæði vegna
hækkunar á erlendum mörkuðum og einnig vegna lækkunar á gengi krónunnar á árinu,
en gjaldmiðlavarnir drógu nokkuð úr ávinningnum. Innlend hlutabréf skiluðu einnig
góðri ávöxtun, en innlend markaðsskuldabréf skiluðu slakri ávöxtun vegna hækkunar á
ávöxtunarkröfu á síðasta fjórðungi ársins. Ávöxtunarkrafan hækkaði verulega í kjölfar
tilkynningar ríkisstjórnarinnar um fyrirhugaða lækkun virðisaukaskatts 1. mars 2007.
Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini skiluðu 31,6% ávöxtun á
síðasta ári í íslenskum krónum. Árið var nokkuð gott á erlendum
hlutabréfamörkuðum en stærsti hluti ávöxtunar stafaði af lækkun
íslensku krónunnar um 23,1%, mælt í gengisvísitölu (GVT). Aðrar
erlendar eignir skiluðu góðri ávöxtun, sérsniðnar fjárfestingar
skiluðu 38% ávöxtun í íslenskum krónum og hlutabréfatengd
skuldabréf 27%. Innlend hlutabréf skiluðu yfir 17% ávöxtun en
innlend skuldabréf um 10%. Sjóðfélagalán skiluðu 10,8% nafn-
ávöxtun sem svarar til 3,5% raunávöxtunar.
Nafnávöxtun samtryggingardeildar var 17,2% á árinu 2006,
raunávöxtun 9,8% og hrein raunávöxtun 9,6%. Meðaltal hreinnar
raunávöxtunar síðustu 5 ár er 4,8%.
Hrein eign til greiðslu lífeyris í samtryggingardeild nam 25.870
mkr. í árslok. Til samanburðar var hrein eign í árslok 2005 20.666
mkr. Hækkunin á milli ára er um 25%. Hrein eign hefur hækkað
ört síðustu fjögur árin, um tæpa 2,5 milljarða hvort ár 2003 og 2004,
um tæpa 4 milljarða árið 2005 og um rúma 5 milljarða árið 2006.
Tryggingafræðileg staða deildarinnar var mjög góð í árslok.
Tryggingafræðilegur hagnaður nam 1.365 mkr. eða um 5,6% af
áföllnum skuldbindingum. Tryggingafræðileg staða vegna væntra
framtíðariðgjalda var einnig jákvæð um 461 mkr., um 1,8% af
framtíðarskuldbindingum. Samanlagt er tryggingafræðileg staða
sjóðsins jákvæð um 1.826 mkr. eða sem nemur 3,7% af heil-
darskuldbindingum.
Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal verja tryggingafræðilegum
hagnaði, þ.e. hreinni eign umfram áfallnar skuldbindingar, til
aukningar áunninna lífeyrisréttinda sjóðfélaga.
Tillaga stjórnar fyrir aðalfund árið 2007 gerir ráð fyrir að 1.065 mkr.
fari til hækkunar allra réttinda miðað við 31. desember 2006 en um
300 mkr. fari til hækkunar á hlutfalli uppbótar úr 80% í 90% til eldri
sjóðfélaga.
5
30.000
25.000 -
20.000 1
15.000 . _ _
10.000 . 1 ■ n 1 ■
5.000 . ■
0 - L
2002 2003 2004 2005 2006
V J
Hrein eign til greiðslu
lífeyris.
í milljónum króna.
6 5
Félagsmál Vfl/TFÍ