Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Blaðsíða 149
Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík
Tækni- og verkfræðideild er stærsta deild Háskólans í Reykjavík með um 1100 nem-
endur. Helsta hlutverk hennar er að veita afburða háskólamenntun fyrir tæknifólk og
stjórnendur framtíðar, stunda öflugar rannsóknir og sinna nýsköpunar- og þróunar-
störfum í tæknifræði og verkfræði. Að auki býður Háskólinn í Reykjavík upp á fjölbreytta
möguleika í símenntun á fagsviðum deildarinnar.
Tækni- og verkfræðideild HR skiptist í fimm fagsvið: Byggingar- og véltæknisvið, fjár-
mála- og rekstrarsvið, heilbrigðistæknisvið, hátækni- og rafmagnssvið og frum-
greinasvið.
í verkfræði er kennt til BSc-gráðu í fjármálaverkfræði, heilbrigðisverkfræði, hugbúnaðar-
verkfræði, hátækniverkfræði og rekstrarverkfræði. Námið byggist á sterkri fræðilegri
undirstöðu í bland við sérhæfða fagþekkingu til að búa nemendur undir þátttöku í
atvinnulífinu eða til frekara náms. Við uppbyggingu námsins er gert ráð fyrir þátttöku
nemenda í umfangsmiklum verkefnum í samstarfi við fyrirtæki og rannsóknarstofnanir.
í tæknifræði er kennt til BSc-gráðu í byggingartæknifræði, vél- og orkutæknifræði og raf-
magnstæknifræði. Markmiðið er að veita sérhæfða og hagnýta fagþekkingu þannig að
útskrifaðir nemendur séu vel undirbúnir til þátttöku í atvinnulífinu. Áhersla er lögð á að
nemendur vinni hagnýt, raunhæf verkefni sem byggja m.a. á þekkingu kennara úr
atvinnulífinu enda hafa flestir kennaranna mikla starfsreynslu við hönnun, framleiðslu
eða framkvæmdir. Námið byggir á traustum grunni tæknideildar Tækniháskóla íslands
þar sem kennsla í tæknifræði hófst árið 1964, en Tækniháskóli íslands sameinaðist
Háskólanum í Reykjavík sumarið 2005.
Við Tækni- og verkfræðideild er boðið upp á framhaldsnám til MSc-gráðu í byggingar-
verkfræði. Boðið er upp á fjögur megináherslusvið: Framkvæmdastjórnun, mannvirkja-
hönnun, steinsteyputækni og umferð og skipulag. Nú stunda um 30 nemendur meist-
aranám við deildina en fyrstu nemendurnir með meistaragráðu í byggingarverkfræði
útskrifuðust frá deildinni í júní. Nemendur sem hafa annan bakgrunn en B.Sc-próf í verk-
fræði eiga kost á að útskrifast með meistarapróf í framkvæmdastjórnun. Haustið 2008
verður framboð á framhaldsnámi við deildina stóraukið með meistaranámi í þeim
greinum verkfræðinnar sem kenndar eru í grunnnámi við deildina, þ.e. fjármálaverk-
fræði, heilbrigðisverkfræði, hugbúnaðarverkfræði, hátækniverkfræði og rekstrarverk-
fræði.
Boðið er upp á diplomanám í iðnfræði sem kennt er í fjarnámi. Um er að ræða hagnýtt
nám á háskólastigi með það að markmiði að styrkja stöðu nemenda á vinnumarkaði og
gera þá hæfari til að takast á við fleiri og fjölbreyttari störf. Námið skiptist í þrjú svið:
byggingariðnfræði, véliðnfræði og rafiðnfræði.
Tækni- og verkfræðideild býður einnig upp á nám í frumgreinum. Markmið náms á
frumgreinasviði er fyrst og fremst að undirbúa nemendur undir frekara nám í deildinni.
Námið byggir á traustum grunni frumgreinadeildar Tækniháskóla lslands og er kjörin
leið fyrir iðnaðarmenn og aðra úr atvinnulífinu sem þurfa frekari undirbúning til
áframhaldandi náms í tækni- og verkfræðideild. Frumgreinasvið er líka vettvangur fyrir
stúdenta sem þurfa að bæta við sig námi í stærðfræði og raungreinum.
Að auki býður tækni- og verkfræðideild upp á námsbrautir í Matstækni. Þetta er hagnýtt
og sérhæft nám sem er sniðið fyrir sérfræðinga og þá sem hafa hug á að starfa á sviði
tjónamats fasteigna, fasteignamats vegna viðhalds, lánshæfismats vegna fasteigna-
viðskipta ofl.
Félagsmál Vfl/TFl i!47