Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Blaðsíða 30
Vélaverkfræðingadeild
Starfsár VVFÍ hefur verið viðburðaríkt. Hér verður farið yfir það helsta. 26. apríl 2006
var varnarliðið og Society of American Military Engineers heimsótt, en jafnframt var
tækifærið notað og aðalfundur haldinn. Heimsóknin var afar áhugaverð í alla staði, en
tvenns konar kynningarefni var á dagskrá. Fyrst var skoðaður áfyllingarbúnaður fyrir
þyrlur varnarliðsins, bæði búnaður á þyrlunum og á eldsneytisflugvél. Hitt dagskrár-
atriðið var notkun og viðhald bakflæðisloka á varnarliðssvæðinu til að koma í veg fyrir
vatnsmengun, t.d. ef þrýstingur félli í vatnskerfi stöðvarinnar. Aðalfundurinn var
haldinn í hliðarsal í svokölluðum Offiseraklúbb (Three Flags Club í byggingu nr. 619).
Samþykktar voru nokkrar lagabreytingar. Stjórnarfundur var haldinn 27. september 2006
þar sem rædd var dagskrá vetrarins.
Skoðunarferð var farin 9. nóvember 2006 til flugdeildar Landhelgisgæslunnar, LHG, á
Reykjavíkurflugvelli. Þar tók á móti okkur Geirþrúður Alfreðsdóttir vélaverkfræðingur,
flugstjóri og flugrekstrarstjóri LHG. Hún flutti góða kynningu og sýndi flugkost LHG.
Lýsi var næsti gestgjafi okkar þann 23. nóvember 2006. Snorri Már Egilsson
verksmiðjustjóri sýndi okkur flókna lýsis- og lyfjaverksmiðju, sem er í alþjóðlegri
samkeppni með fyrsta flokks afurðir.
Síðasta heimsókn starfsársins var farin í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar £ Skógarhlið 14,
2. mars. Loks var aðalfundur VVFÍ haldinn 8. mars í húsi VFl. Byrjað var á fróðlegu er-
indi Sveins I. Ólafssonar, sviðsstjóra á VST, en eftir spumingar var haldinn stuttur en
markviss aðalfundur.
Egill Þórðarson, Eggert Aðalsteinsson og Ólafur Pétur Pálsson
Ársskýrsla kvennanefndar VFÍ
Starfsárið 2006-2007 var kvennanefnd VFÍ skipuð Ömu Sigríði Guðmundsdóttur, Helgu
Jóhönnu Bjarnadóttur, Jóhönnu Hörpu Árnadóttur og Kolbrúnu Reinholdsdóttur.
Nefndin var stofnuð til að hvetja konur til þátttöku í félagsstarfi VFÍ og til að mynda
tengslanet kvenna í stétt verkfræðinga. Á starfsárinu sátu tvær konur í stjórn VFI. I stjórn
Stéttarfélagsins voru þrjár konur og í stjórn Lífeyrissjóðs verkfræðinga sat ein kona.
Þann 9. nóvember 2006 var farið í fyrirtækjaheimsókn til Marels hf. Fyrst hafði Ylfa E.
Jakobsdóttir starfsþróunarstjóri almenna kynningu á fyrirtækinu. Síðan gengu Berglind
Fróðadóttir, hönnuður á vélhönnunarsviði, og Ragnheiður Halldórsdóttir, upplýsinga-
tækni- og gæðastjóri, með gestunum um fyrirtækið. Þær sögðu frá störfum sínum hjá
Marel og starfsemi fyrirtækisins.
Á milli KVFÍ, Félags kvenna í lögmennsku, Félags kvenna í læknastétt og Félags kvenna
í endurskoðun hefur skapast jákvæður samstarfsvettvangur. Sameiginlegur fundur
fyrrgreindra fagfélaga var haldinn þann 23. nóvember 2006 í boði Orkuveitu Reykjavíkur.
Fundurinn hófst með kynningu á Órkuveitu Reykjavíkur en síðan tóku við stuttar kynn-
ingar á fagfélögunum. Framsögu höfðu formenn félaganna og voru hugmyndir að fyrir-
komulagi á samstarfi ræddar.
Starf kvennanefndar VFÍ hefur verið opið öllum verk-og tæknifræðingum, óháð
félagsaðild. Með þeim hætti er vonast til að ná til sem flestra tæknimenntaðra kvenna í
landinu. Þar sem konum í verkfræðinámi fer fjölgandi þarf að huga að því með hvaða
hætti best verður komið til móts við óskir þeirra í félagsstarfi að námi loknu. Á þeim
árum sem nefndin hefur starfað hafa ýmsir aðilar sóst eftir samstarfi með það að mark-
miði að auka hlut kvenna í faginu sem og í áhrifastöðum. Slíku samstarfi hefur verið
sinnt eftir bestu getu og hefur gefist vel.
Jóhanna Harpa Árnadóttir
2 8 I Á r b ó k VFl/TFl 2007