Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Blaðsíða 157
viðskiptavina. Þar eru helstir rafverktakar og
rafvirkjar, rafhönnuðir, arkitektar, innan-
húshönnuðir og iðnhönnuðir en eirtnig eru
ýmis stórfyrirtæki í hópi viðskiptavina.
Meðal helstu birgja S. Guðjónssonar má
nefna GIRA, sem er leiðandi fyrirtæki í raf-
búnaðarlausnum, og er eitt af aðalsmerkjum
fyrirtækisins í dag. Hjá GIRA eru hönnun,
gæði, þjónusta og útlit sett í fyrsta sæti. Aðrir
birgjar sem vert er að nefna eru Mennekes
sem framleiðir hágæða CEE-búnað, Wago-
tengibúnað, Brand-Rex fjarskiptalausnir, GE
Power Controls, PM-Flex raflagnabarka,
Beghelli-neyðarljós, og lýsingarbúnað frá
Concord, Modular, Kreon, Regent og Disano
ásamt fjölda annarra smærri birgja. S.
Guðjónsson hefur einnig umboð fyrir lofta-
kerfi frá belgíska fyrirtækinu Vektron.
Metnaðarfull verkefni
S. Guðjónsson hefur átt aðild að byggingu margra af stærstu byggingum landsins. Sem
dæmi um verkefni sem fyrirtækið hefur tekið þátt í síðastliðin ár, í árangursríku samstarfi
við fjölda rafverktaka, rafhönnuði og arkitekta, má nefna Bláa lónið, Hitaveitu
Suðurnesja, Listasafn Reykjavíkur, Olíshúsið, Hæstarétt, Gerðarsafn, Islenska erfða-
greiningu, Nordica Hotel, Hellisheiðarvirkjun, Reyðarál, Kárahnjúkavirkjun, Smáralind
og nú nýlega Smáratorg 3 (Smáraturn) og fyrirhugaðar byggingar í Höfðatúni, svonefnt
Höfðatorg.
Tímamót
í febrúar 2006 urðu stór tímamót í sögu fyrirtækisins. Þá var það selt úr eigu fjölskyldu
stofnandans, Sigurðar Guðjónssonar, og lauk þar með tæplega 50 ára fjölskyldusögu
þess. Kaupandi fyrirtækisins var eignarhaldsfélagið AKSO sem er í eigu Boga Þórs
Siguroddssonar og konu hans Lindu Bjarkar Ólafsdóttur. AKSO ehf. á einnig þrjú önnur
fyrirtæki sem öll starfa á sviði innflutnings en þau eru Sindri, Johan Rönning og Hebron.
í kjölfar ýmissa breytinga innan S. Guðjónssonar var ákveðið í framhaldinu að skipta upp
starfsemi fyrirtækisins. Annars vegar er þjónusta við fagaðila sem er í Auðbrekku 9-11 og
svo hins vegar er þjónusta við neytendur. Neytendaverslun var opnuð á vormánuðum
2007 í Hlíðasmára 1 í Kópavogi og nefnist sú verslun Prodomo. Þar er að finna mikið
úrval rafbúnaðar og lýsingar fyrir heimili.
Félagsmál Vfí/TFÍ
1 5 5