Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Blaðsíða 324
faðma víralengd úti. Mál og fjarlægðir á mynd eru
gefnar upp ýmist í föðmum eða metrum. Þannig er
gert ráð fyrir 270 m (148 faðma) hlerafjarlægð, 27 m
(15 faðma) hæð hlera yfir höfuðlínu, 145 m (79
faðma) láréttri opnun og 110 m (60 faðma) lóðréttri
opnun. Með rúmhorni (Q er verið að taka tillit til
þess að togvírarnir fara ekki beint aftur frá tog-
blökkum heldur á ská út og fæst þá:
£ = arcsinfKy/(sin^arctaníKy/Kz)) x Mc)] (5)
þar sem Ky = þverskips hnit hlera (hlerafjarlægð að
frádreginrii fjarlægð milli togblakka, helminguð), Kz
= lóðrétt hnit hlera (höfuðlínudýpi að frádreginni
hlerahæð yfir höfuðlínu að viðbættri hæð togblakka
yfir sjólínu) og Mc = víralengd, frá togblökk í hlera.
Með því að ofanvarpa heildarvíraátaki (Fy) með
cosínus-hornafalli fæst síðan dráttarkrafturinn Fj,
sama og mótstaða veiðarfæris Rp, sjá mynd 5.
F Formúlurfyrir orkunotendur um borð: Þessi hluti hermis tekur á orkunotendum um borð
fyrir einstakar aðgerðir, þar með talið fasta rafmagnsnotkun, og orkunotkun vegna
fiskvinnslu og vindubúnaðar.
G Formúlur fyrir framdrifsafl og afl aðal- og hjálparvéla: Hermirinn reiknar hér skrúfuaflþörf
fyrir einstakar aðgerðir (sjá umfjöllun áður) og aflþörf ásrafals á grundvelli notkunar í
F-hluta. Hvað varðar það síðastnefnda er mikilvægt að nálgast sem best nýtni rafals sem
er háð hlutfallslegu álagi.
Afl í hestöflum (PG) sem fer í rafmagnsframleiðslu (EG) má reikna út með eftirfarandi
formúlu:
Po =
En
Vo* fpx hs ^lo x 0,736x0,97
(6)
þar sem PG = Aflþörf vegna rafmagnsframleiðslu (hö), EG = Framleitt rafafl (kW), /;G=
Nýtni rafals (breytileg eftir álagi), fP = Breytistuðull (1 ha = 0,736 kW) og r\R =
Nýtnistuðull gírs (= 0,97).
Rafall hefur innbyggt ákveðið fast tómgangsafl við sinn fasta snúningshraða. Þannig
batnar heildarnýtni rafalsins með auknu álagi. Það liggur fyrir að stærri rafalar hafa betri
nýtni miðað við álag sem svarar til nafnálags En (100% álag). Þannig má reikna heildar-
nýtni rafals (r\G) sem margfeldi af tvenns konar nýtni, þ.e.: pGj = Föst nýtni rafals miðað
við fullt álag, fall af stærð rafals og j]Gb = Breytileg nýtni rafals, háð hlutfallslegu álagi. Af
því leiðir að heildarnýtni rafals verður:
'7g= '7g/x Tlcb (7)
Notaðar eru reynslutölur frá tæknideild Fiskifélags íslands um fasta nýtni og útreikning
á tómgangsafli rafals, þ.e.:
Fyrir 1304 kW rafal (í Þerney RE) => Pcf- 0,956
og formúlan fyrir tómgangsafl (Ef):
E( = (1 - r\Gf) x 0,537 x E„ (8)
í tilviki Þerneyjar RE fengist tómgangsafl upp á 30,8 kW með innsetningu í formúlu (8).
Rétt er að geta þess að þekking á tómgangsafli ásrafala í eyðslustuðlamælingum aðalvéla
um borð í skipum hefur mikla þýðingu.
3 2 2| Arbók VFl/TFl 2007