Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Blaðsíða 227
Management Journal (PMJ) til þess að varpa ljósi á hvernig sviðið er að breytast. Þeir skil-
greina 48 viðfangsefni verkefnastjórnunar, sem ná yfir 18 frumþætti.
A alþjóðlegri ráðstefnu um verkefnastjómun í Shanghai haustið 2006 kynntu Helgi Þór
Ingason og Haukur Ingi Jónasson [11] myndræna framsehúngu á megininntaki verkefna-
stjórnunar, byggða á áðurnefndum 18 frumþáttum og 48 viðfangsefnum.
Hæfnisaugað (e. Eye of Comptence) var sett fram í
3- útgáfu hugtakalykils IPMA [7] vorið 2006. Hæfnis-
augað er sýnt á mynd 2.
Tæknilegir hæfnisþættir hafa mest vægi, þá
hæfnisþættir hegðurnar og loks hæfnisþættir sam-
spils. I hugtakagrunninum er ekki útskýrt af hverju
hlutföllin milli hinna þriggja hæfnissviða eru eins og
htyndin sýnir en að þessu verður vikið síðar. Þættir
sem flokkast undir hvert hinna þriggja hæfnissviða
eru hér taldir upp án frekari skýringa:
Ilættir hegðunar - Forystuhæfni, nánd og hvatning,
sjálfstjórn, rökvísi, slökun, opin viðhorf, sköpun,
marksækni, hagsýni, samráð, samningafærni, hæfni
til að leysa ágreining, áreiðanleiki, virðing fyrir
skoðunum, siðfræði.
Þættir samspils - Verkefnisvitund, verkefnastofnar, verkefnaskrár, innleiðing verk-
efnastofna og verkefnaskráa, varanleg skipuheild, fyrirtæki, kerfi - afurðir og tækni,
starfsmannastjórnun, heilsa - öryggi - starfsmannaöryggi og umhverfi, fjármál, lagamál.
Tæknilegir þættir - Arangur í verkefnastjórnun, hagsmunaaðilar, þarfagreining og mark-
mið, áhætta og tækifæri, samræmi við kröfur, stjórnskipulag verkefnis, hópvinna, lausn
vandamála, verkgreining / sundurliðun, afmörkun og afurðir, tími og áfangar verkefnis,
aðföng, kostnaður og fjármál, innkaup og samningar, breytingar, verkefnisgát og
skýrslur, upplýsingar og skjalfesting, samskipti, ræs verkefnis, verklok.
Þegar hæfnisaugað og þættir þess eru bornir saman við áherslusvið PMBok sést að
áherslusvið PMBok falla fyrst og fremst í hina tæknilegu þætti hæfnisaugans; PMBok
fjallar sáralítið um þætti hegðunar og samspils. Hæfnisaugað endurspeglar því allt aðra
sýn á inntak og áherslur verkefnastjórnunar en hinn útbreiddi hugtakagrunnur PMBok.
I þessari grein er skoðað hvort nýta megi hæfnisaugað sem einfalt greiningartæki til að
meta inntak verkefnastjórnunar með hliðsjón af gögnum sem fá má með því að horfa
hlutlægt á aðferðafræðina út frá mismunandi sjónarhornum. Á grundvelli hæfnissvið-
anna og undirliggjandi hæfnisþátta var þessum gögnum varpað í hvert hinna þriggja
hæfnissviða. Hlutfallslegt vægi á milli þeirra var reiknað út og endurspeglað sem flatar-
mál svæðanna þriggja í hæfnisauganu.
Greiningartæki eins og hér hefur verið lýst má beita á margskonar uppsprettur upplýs-
inga til að öðlast tilfinningu fyrir helstu áherslum verkefnastjórnunar. í þessari grein er
hæfnisaugað notað til að meta áherslur verkefnastjórnunar út frá þremur eftirtöldum
sjónarhornum:
• Greinar birtar í PMJ og IJPM á tímabilinu 2003-2006.
• Fjórar MPM (Master of Project Management) námslínur sem tengjast alls 11 háskólum
í Bandaríkjunum og Evrópu.
• Valdar kennslubækur á sviði verkefnastjórnunar, útgefnar á árinu 2003 eða síðar.
Mynd 2 Hæfnisaugað (e. Eye of Competence) - úr 3. útgáfu hug-
takalykils IPMA.
Ritrýndar vísindagreinar i 225