Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 12
SKAGFIRÐINGABÓK
samhliða hinni ríku ástúð hennar átti hún yfir þeirri festu að
ráða, að úrskurðir hennar voru lög heimilisins, þótt þess valds
yrði lítið vart. Víst er, að ýmsar þær konur, sem hjá henni voru
á ungum aldri, ræktu vinátm til hennar, unz yfir lauk. Slík var
vinfesta hennar.
Þegar við unglingarnir komum að Nautabúi, fór að jafnaði lít-
ið fyrir húsráðendunum. Þar varð okkur jafnöldrum mínum star-
sýnast á ungviðin, — fullan bæ af börnum, — flestum bráðgerv-
ari, flestum slíkum glaðari og frjálslegri og öllum sínum jafn-
öldrum í því nágrenni fræknari.1 Nautabússtrákarnir voru óum-
deilanlega „strákar“, — ærslabelgir, fjörkálfar, — en svo fágaðir
í ærslum sínum og háttum, að jafnaldrarnir drógust að þeim eins
og svarf að segulstáli. A þeim árum var ungmennafélag starfandi
þar í nágrenninu, fjölmennt og fjörugt. Þangað sóttu ungmenni
umhverfisins af kostgæfni. Er áreiðanlega á engan hallað, þótt
fullyrt sé, að ekkert heimili hafi lagt þar fram slíkan hlut af
frjálsri og fágaðri gleði eins og Nautabú. Ég vissi ekki til, að Jón
væri þar félagi. Hann kom þar þó við sögu, því oft var hann þar
við, þegar íþróttir voru iðkaðar, en aldrei svo ég vissi sem þátt-
takandi, en síeggjandi þá, sem minna máttu sín að duga og duga
betur næst, ef þar var beðinn lægri hlutur.
Heima á Nautabúi varð ekki hjá því komizt að veita því at-
hygli, hve ríkur þáttur gleðin var í heimilislífinu. Að sjálfsögðu
varð mér starsýnt á ærslin. En ég tel mig skilja það nú, að bak
við þá ólgandi orku og fjör, sem sá óvenju vænlegi hópur bjó yfir,
er þar óx úr grasi, stóðu fágætir persónuleikar, sem ræktuðu og
þjálfuðu orkuna og tömdu ærslin. Þess vegna reyndist hvort
tveggja svo fágað, sem raun gaf vitni, enda voru húsráðendurnir
samstæðir og óvenju fágaðir jafnt í gleði og störfum.
Jón fæddist í Valadal 3. júlí 1867. Móðir hans var Jórunn
Hannesdóttir, bónda á Mælifellsá og á Hömrum. Móðir Jórunn-
ar og kona Hannesar var Ingibjörg Hrólfsdóttir, Þorsteinssonar
1 í Skagf. æviskrám II er þáttur um þau Jón og Sólveigu og þar talin börn
þeirra.
10