Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 15
NAUTA BÚSHJÓNIN
Jón kvæntist 1889. Kona hans var Sólveig Eggertsdóttir frá
Mælifelli. Móðir hennar var Sigurveig Ingimundardóttir, bónda
á Þórustöðum í Grímsnesi, Sturlusonar. Móðir hennar, kona Ingi-
mundar, var Katrín Guðmundsdóttir. Verða ættstofnar þeirra
raktir víða um Arnesþing.
Sigurveig ólst upp hjá foreldrum sínum og frænda þar í Gríms-
nesinu. Vorið 1843 réðst hún vinnukona til sr. Páls Tómassonar,
föðurbróður Gríms Thomsens, sem þá bjó prestlaus í Miðdal í
Laugardal. Hafði hann gerzt fjölþreifnari til kvenna en hæfa þótti
stöðunni. Olli uppskera þess erfiðis honum hemputapi um skeið.
En fyrirgefningu þess fljótræðis hlaut hann nokkru fyrr en full
rök hnigu til, og voru honum veittir Knappsstaðir í Fljótum þetta
vor.1 Vildi frændi Sigurveigar þá rifta vistráðunum, en það tók
prestur ekki í mál, flutti hana að Miðdal, þegar frændi hennar
var fjarverandi og þó nauðuga. Varð það hlutskipti hennar um
sumarið að „reka á eftir“ kúm prests frá Miðdal norður að
Knappsstöðum í Fljótum og Kjölur valinn, enda stytzta leiðin.
Skyldi hún ganga þessa löngu leið. Var Sigurveig þá tæpra 16 ára.2
Líklegt er, að táp hennar og þroski hafi þá verið talsvert yfir
meðallagi, að hún skyldi þola það ódæma erfiði svo ung að árum.
Ovíst er, hve lengi hún var á vist með sr. Páli þar á Knappsstöð-
um, en þaðan réðst hún til sr. Jóns Sveinssonar, landlæknis Páls-
sonar, er þá hélt Hvanneyri í Siglufirði. Með honum fluttist hún
að Mælifelli 1866 sem vinnukona og dvaldi þar um sinn. En 24.
desember 1869 fæddist henni dóttir, sem hún kenndi Eggert, syni
prestshjónanna á Mælifelli, sem þá mun hafa verið rúmra 16 ára.
Fæddist dóttirin á Starrastöðum, sem bendir til þess, að eigi hafi
hún þótt aufúsugestur í fjölskyldunni. Kona sr. Jóns, Hólmfríður
Jónsdóttir, prests í Reykjahlíð, Þorsteinssonar, var nærkona, og
féll ljósmóðurstarfið í hennar hlut. Tók hún barnið með sér heim
að Mælifelli. Þangað átti móðirin ekki afturkvæmt. Hlaut dóttir-
in í skírninni heitið Sólveig.
1 Frásagnir af sr. Páli eru í Skagfirðingabók V.
2 F. 15. september 1827.
13