Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 82
SKAGFIRÐINGABÓK
Ég var gamalkunnugur á þessum slóðum, hafði \ erið þarna
nokkra daga sumarið 1934 með Johs. Humlum, þá stúdent, nú
prófessor í landafræði í Arósum; mældum við þá svæðið og skírð-
um hverina (með bókstöfum), en þeir höfðu ekki verið uppmæld-
ir síðan Thoroddsen1 var þar árið 1888. Gaman var að athuga
breytingar, sem orðið höfðu síðan 1934, og gaman hefði verið
að gera aftur samanburð 1973, en þá fengum við aðeins 20 mínút-
ur til að kanna svæðið. Þá var líka rigning, og það rigndi líka
mestallan tímann, sem við Kristmundur dvöldumst þar 1937,
nefnilega tvo sólarhringa. Hestarnir voru ýmist hjá okkur í kof-
anum eða í höftum, en gátu þó rásað of langt. Við reyndum að ná
í kalt vatn einhvers staðar á svæðinu, en það virtist hvergi finnan-
legt. Heita vatnið var drekkandi, en þó ekki án aukaáhrifa (þvag-
leysandi, sennilega vegna brennisteinsins (SO^) í vatninu; ég
hafði með mér SOL> til þess að bera saman lyktina!).
Eftir tveggja daga viðdvöl héldum við svo áfram ferðinni vest-
ur um Kjalhraun, í Tjarnardali og síðar Þjófadali. Við stoppuð-
um ekkert, en héldum áfram meðfram Fúlukvísl og stöldruðum
við hjá Þrengslum (stukkum þar báðir yfir kvíslina), og þar eð
veðrið fór versnandi, héldum við rakleitt í Hvítárnes. Við vorum
nú orðnir vanir einveru og öræfakyrrð, og lífið í sæluhúsinu varð
ónæðissamt. Jói2 frá Mælifellsá var þar kominn með alla útlend-
ingana og auk þess var þarna danskur jarðfræðingur, Axel Nör-
vang, og tveir ungir fiskifræðingar, annar þeirra var Jón Jóns-
son, núverandi forstöðumaður Fiskideildarinnar. Alls voru þarna
átján tjöld, ellefu bílar og hundrað manns; „óverandi“, skrifaði
ég í dagbókina. Nörvang varð eftir, þegar við fórum suður, en
varð okkur samferða norður.
Næsta dag fórum við yfir Fúlukvísl, vestur að Fróðárdal og
Karlsdrætti, en þar hafði ég legið eina viku við í tjaldi 1934. Við
riðum hart yfir sandinn, og allt í einu datt Mósi á hausinn og ég
beint fram af honum; hvorugur meiddist, en aldrei hef ég séð
1 Þorvaldur.
2 Jóhann Magnússon (frá Gilhaga), bóndi þar.
80