Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 195
HINZTA FÖR AÐ HAGAKOTI
lenzka bókmenntafélags. Þar segir m. a.: ,,Víst má siðferði teljast
hér í betra lagi, og alllitlar finnast hjátrúarleifar; hafa hér og um
nokkra hríð engir óknyttir framdir verið, allra sízt þjófnaður
.... sennilega má telja hér viðunanlega skipun á vera eftir aldar-
fari, þó víða virðist hér framar gjört sér far um tollatekjur en
siðavendni." Fór svo fram að mesm um hans daga (Benedikt and-
aðist 1868), en eftir það spillmst siðirnir og óöld hófst í dalnum.
Þá er saga þessi gerðist, var farið að brydda á ýmsu til hins
verra, og svo kaldhæðin voru örlögin, að rætur meinsins mátti að
nokkru rekja í garð siðameistarans sjálfs.
Jón, einkasonur séra Benedikts, var uppalinn í fádæma eftir-
læti, sem frægt varð, og lærðist aldrei að sjá fótum sínum forráð.
Hann hafði um þetta leyti (1860) byrjað búskap á móti föður
sínum. Hallaðist þar brátt á ógæfuhliðina, þótt presti tækist nokk-
uð að halda í horfinu meðan hann lifði og gat haft hönd í bagga.
Jón gerðist snemma drykkfelldur og svo taumlaus í meðferð fjár-
muna, að undrun sætti. Hann var sjálfur hrekklaus maður, en
ósjálfstæði hans og sukk leiddi til óráðvendni og lausungar ýmissa
manna, sem höfðu geð til að notfæra sér örlæti hans og fyrir-
hyggjuleysi.
Þannig er svið þess atburðar, er varð einn blíðan dag í október
1862.
Að Hjaltastöðum í Blönduhlíð kemur sendiboði frá hrepp-
stjóranum í Hólahreppi með bréf til sýslumanns. Það er merkt
„opinbert mál“ og óðara er yfirvaldið fær það í hendur, brýtur
það innsiglið og les með athygli:
„Velborni herra sýslumaður Eggert Briem á Hjaltastöðum.
Hér með tilkynnist yður, að Sigurður Jónsson, vinnumaður
minn, hafði farið eftir háttatíma uppúr rúmi sínu í nótt eð var
til næsta bæjar, Hagakots, og verið að slarka þar drukkinn, hvar
af flaut að Markús, bóndi þar, sótti mig sem húsbónda hans og
ég undir eins brá við með tvo vinnumenn mína þangað, en þegar
við komum var hann að okkar sjón örendur. Svo sótti ég Svein á
Skúfsstöðum sem nærfærinn mann til að reyna með lífsbjargar-
13
193