Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 145
FLJÓT í SKAGAFIRBI Á NÍTJANDU ÖLD
Island. Kosin var nefnd manna til að fjalla um málið af hálfu
Skagfirðinga, og áttu í henni sæti tveir Fljótamenn, en einn innan
úr Skagafirði. Nefnd þessi hélt fund á Hraunum 24. júlí 1884 og
gerði álit um málið, en það var tekið fyrir á sýslunefndarfundi
1885, samþykkt þar og sent amtmanni.16
Þegar fiskveiðisamþykktir og löggjöf varðandi útræði og land-
helgi hafa tekið gíldi, taka menn að reka sig á ákvæði laga þess-
ara og velta fyrir sér meira en áður, hvað sé lagalega heimilt og
hvað ekki. Eitt slíkt mál kemur upp árið 1895, en þá eru í bréfi
hreppstjóra til sýslumanns fyrirspurnir um lögmæti atviks, er hér
skal frá greint. I bréfinu, sem ritað er 3. maí 1895, segir frá að-
komuhvalbát vestan úr Alftafirði, sem komið hafi með dauðan
hval inn á Haganesvík þann 26. apríl og lagt honum þar við
stjóra. Sama hafi endurtekið sig næsta dag, en þá hafi skipstjóri
beðið nærstadda menn að hafa auga með hvölum þessum fyrir
sig meðan hann skryppi vestur og fengi sér kol. Svo hafi farið, að
annar hvalanna hafi slitnað upp og rekið á land, en Fljótamenn
hafi brugðið á hann bandi og fest hann við land. Síðan hafi fyrr-
greint skip komið og skipsmenn tekið hvalina „án þess að eiga
nokkurt tal við mennina, er fest höfðu hvalinn."
Þetta eru málavextir, en nú vakna Fljótamönnum spurningar
um rétt sinn í þessu máli. Því heldur hreppstjóri áfram:
„Það er nú alls ekki svo, að menn hjer hafi nokkuð horn
í síðu þessara hvalveiðamanna — þó það að öðru leyti
megi sorglegt heita að Islendingar horfi ár eptir ár að-
gjörðarlausir á veiðiskap þennan — en með því þessar
aðfarir hvalv.manna á Haganesv. eru fremur óviðkynnan-
legar þá leyfi jeg mjer að gera þá fyrirspurn, hvort gild-
andi lög muni gjeta veitt landeiganda nokkurn kröfu-
rjett til hvals þess er slitnaði upp og rak í land og jafn-
framt hvort menn þeir er festu hvalinn eptir að hann
var orðinn landfasmr geti ekki krafist sanngjarnrar borg-
unar frá eiganda eða eigendum fyrir þetta starf sitt og
festarlán."17