Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 93
ÞEGAR DROTTNINGIN STRANDABI
Hraunsvör, hressir í bragði eftir fengsæla för. En horfurnar um
afdrif hollenzka togarans munu þó hafa legið okkur öllum efst
í huga.
Nyrztu bæir á Skaga austanverðum eru Hraun, Þangskáli og
Kelduvík. Stendur Þangskáli, bernskuheimili mitt, í miðju þess-
ara býla. Er um það bil kortils gangur til bæjanna báðum megin.
Nú hafði talast svo til með Sveini afa mínum og Jóni föður mín-
um, að nákvæm gát yrði höfð á því, hvernig hoilenzka togaranum
reiddi af á kvöldflóðinu. Gekk því faðir minn á strandstaðinn,
þegar komið var að háflæði. Var þá heldur en ekki komið líf í
tuskurnar á togaranum. Skipsmenn hlupu fram og aftur um þil-
farið, hrópandi og kallandi. Það söng og hvein í vél skipsins, svo
að heyra mátti langar leiðir. Jafnvel skipshundurinn færði sig
spangólandi stað úr stað. En allt kom fyrir ekki. Skipið sat fast á
flúðinni, og því varð ekki þokað þaðan. Þegar útséð var um lausn
togarans á klöppinni, hvarf faðir minn af strandstaðnum og lét
síðan vita að Hrauni, hvernig komið væri. Varð það að ráði
heimamanna að bíða skyldi frekari aðgerða af útlendinga hálfu.
Um þessar mundir var bærinn Kelduvík í eyði. Hafði síðasti
ábúandinn horfið þaðan tveimur árum áður en þetta gerðist. En
Sveinn bóndi á Hrauni átti jörðina og notaði hana með búi sínu.
Nokkur útihús voru þar uppistandandi og hrörleg baðstofa, sem
nota mátti í nauðum.
A sunnudagsmorguninn fóru Hraunsmenn og faðir minn aftur
á strandstaðinn. Höfðu skipverjar þá farið á báti sínum upp í
Kelduvíkina og voru meira að segja farnir að hreiðra um sig í
gömlu baðstofunni á staðnum. Kenndi nú meiri asa og óþreyju
í framkomu þeirra en áður. Eftir allmiklar viðræður, æði skrykkj-
óttar til skilnings, kom þó tvennt í ljós af þeirra hálfu. Þeir vildu
þegar í stað fá hlutaðeigandi sýslumann til viðtals um skipið.
Jafnframt óskuðu þeir að fá að dvelja í húsakynnum eyðibýlisins
meðan á þyrfti að halda. Var þeim gjört skiljanlegt, að báðum
þessum óskum þeirra skyldi sinnt gegn hæfilegu gjaldi.
Nú varð það hlutur heimamanna að hefjast handa um fram-
91