Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 55
SÉRA ÞORSTEINN PRESTLAUSI
eftir EINAR BJARNASON
í GREIN Þormóðs Sveinssonar, Felustaður frúarinnar á Hólum,
í 6. hefti þessarar bókar, er minnst á Þorstein Jónsson, sem
sprettur fram í óvinahópi Jóns biskups Arasonar og fólks hans,
en hefur annars verið lítt kunnur. Nú hefur Einar Bjarnason
prófessor sent eftirfarandi grein, um hendur Þormóðs, þar sem
gerð er grein fyrir Þorsteini þessum og lífshlaupi hans. Kann
ritstjórnin honum beztu þakkir fyrir.
í íslenzkum æviskrám er nefndur Þorsteinn Jónsson
prestur, sem var á Hofi á Skagaströnd 1586 og 1593, en dæmdur
er útlægur úr Norðlendingafjórðungi 9. september 1595 nema
hann tæki aftur konu sína, sem hét Þuríður Einarsdóttir.
Þar er sagt, að prestur þessi muni vera Þorsteinn, sem kallaður
hefur verið prestlausi, bróðir Þórunnar móður Benedikts ríka
sýslumanns og klausturhaldara á Möðruvöllum í Hörgárdal Hall-
dórssonar, og þá faðir Olafs föður séra Þorsteins í Vesturhóps-
hólum föður séra Gunnlaugs í Vallholti, annálaritara.
Tilgátan í æviskránum er eflaust röng, þegar af þeirri ástæðu,
að Olafur Þorsteinsson, afi séra Gunnlaugs, er varla fæddur síðar
en um 1535 og séra Þorsteinn faðir hans þá varla síðar en um
1510 og ætti þá að hafa verið hátt á níræðisaldri, þegar hann var
gerður fjórðungsrækur.
Ég veit ekki hvaðan sú vitneskja er tekin, að Þorsteinn sá, sem
hefur borið viðurnefnið „prestlausi", hafi verið bróðir Þórunnar
móður Benedikts, en það má vel vera rétt, og Þorstein átti hún
að bróður, sem prestur var, a. m. k. um tíma.
53