Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 177
FLJÓT í SKAGAFIR8I Á NÍTJANDU ÖLD
Algert hlé verður á umræðum og aðgerðum í hreppsskiptingar-
málinu í 14 ár, og það var ekki fyrr en á sýslunefndarfundi 20.
febrúar 1894, að bréf barst frá oddvita hreppsnefndar Holts-
hrepps, en þar kom fram, að atkvæðagreiðsla um skiptingu
hreppsins á almennum bændafundi 6. febrúar s. á. hefði leitt í
ljós, að 50 bændur hefðu verið meðmæltir, en 24 á móti (átt er
við skiptingu eftir sóknum eins og árið 1880). Með bréfi þessu
voru lögð fram drög að reglum um skiptinguna, en sýslunefnd
tók þann kost að fresta málinu um sinn, sennilega vegna þess, að
úrslit atkvæðagreiðslunnar hafa ekki þótt nægilega afgerandi.5
Á fundi sýslunefndar 19. febrúar 1895 kom hreppsskiptingar-
málið á dagskrá á ný, og hafði almennur bændafundur samþykkt
skiptinguna hinn 8. október árið áður með 54 atkvæðum gegn 7.
Enn voru lagðar fram reglur hreppsnefndar um skiptinguna frá
árinu áður ásamt viðaukum frá 8. desember s. á. Sýslunefnd sam-
þykkti skiptinguna nú „í einu hljóði“ samkvæmt framlögðum
reglum.0
A sýslunefndarfundi 18. febrúar 1896 voru lögð fram skjöl frá
hreppsnefnd Holtshrepps varðandi skiptingu hreppsins, meðal
annars fundargerð bændafundar frá 1. febrúar, þar sem skiptingin
var samþykkt „með eindregnu fylgi“. Einnig voru lagðar fram
nýjar reglur um skiptinguna, og voru þær samþykktar af sýslu-
nefnd „í einu hljóði“.7
Enn kemur mál þetta fyrir fund sýslunefndar 23. febrúar 1897,
en þá fer hreppsnefnd Holtshrepps fram á það við sýslunefnd, að
hún endurnýi samþykki sitt um skiptinguna, og var það fúslega
veitt.8
Eftir þennan langa undirbúningstíma, umræður og athuganir
hreppsnefndar og staðfestingar sýslunefndar, var nú loks komið
að því, að skipting hreppsins yrði að veruleika. I landshöfðingja-
bréfi frá 26. maí 1896 kemur loks fram fyrirskipun um skipting-
una, sem framkvæmd skal eftir 3. gr. tilskipunar frá 4. maí 1872
um sveitarstjórn á Islandi, og eru fyrstu tvær greinar skipunar-
bréfs um skiptingu Holtshrepps svolátandi:
175