Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 79
VÍSINDAMABUR í SVEIT
færi til að sjá Hóla, þótt mér tækist ekki að fá hann til að fara
yfir Hjaltadalsá, en húsfreyjan á Kálfsstöðum1 bauð mér hjálp sína
(auðvitað eftir að hafa boðið upp á mjólk; þurfandi gekk maður
aldrei frá íslenzkum bæ).
Eftir ennþá eina nótt á Hofdölum labbaði ég aftur yfir á Sauð-
árkrók, fór þó ríðandi part af leiðinni; maður frá Miklabæ reið
fram á mig með tvo hesta og bauð mér annan.
Lengsta ferð okkar Kristmundar þetta sumar var að Rústakofa
frammi á heiðum. Við vorum með fjóra hesta, einn undir tösku,
og fórum hratt, eftir þriggja og hálfs klukkutíma reið komum
við að Bjarnastaðahlíð. Þar gátum við ekki haft samastað, en
okkur var sagt, að Guðmundur2 í Litluhlíð mundi verða fylgdar-
maður okkar og hjá honum og konu hans, ljósmóðurinni3, fengum
við gistingu. Þar var alúðlegt fólk og gott að gista þar. Við feng-
um skyr um kvöldið, morgunkaffi í rúmið og síðan morgunverð,
er á fætur var komið. Klukkan tíu var lagt af stað. Veginn fram
að Þorljótsstöðum þekkti ég, en tvívegis var farið yfir Jökulsá til
þess að flýta förinni upp á hálendið. Sólskin var og brennandi hiti,
svo að ekki einungis hestarnir heldur við allir þömbuðum blá-
vatnið, þegar tækifæri gafst; sem betur fór var bæjarlækur þar
gáskafullur og iðinn. Fyrir framan Þorljótsstaði voru krákustígir
upp á hálendið, frá hér um bil 300 m yfir sjó upp í 600 m. Eg
hef síðar farið upp á öræfin að sunnan og norðan yfir Kjöl og upp
á Sprengisand að sunnan, en hvergi farið aðra eins krákustígi og
hér. A hálendinu var afar fagurt, slétt grágrýti. Því miður var okk-
ur ekki sagt frá Hraunþúfuklaustri, svo að við skoðuðum engar
rústir, en varla er hægt að ímynda sér, að þessi svæði hafi nokkurn
tíma verið byggileg.
Við hvíldum okkur og hestana við Stafnsvatn og fórum í söfn-
unarleiðangur og komum að Rústakofa um hálffimm. Þetta var
fyrsta sæluhúsið, sem ég hafði séð, vel gerðut kofi, steinhlaðinn
að neðanverðu og rúm var fyrir sex hesta. Fyrir gesti var þiljaður
1 Hefur trúlega verið Sigurveig Friðriksdóttir.
2 Olafsson.
3 Olína Sveinsdóttir.
77