Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 13
NAUTA BÚSHjÓNIN
á Alfgeirsvöllum. Pétur faðir Jóns var Pálmason, bónda í Syðra-
Vallholti, Magnússonar. Móðir Péturs í Valadal var Ingibjörg
Bjarnadóttir. Standa að Valadalshjónum skagfirzkar ættir að lang-
feðgatali.2 Pétur var afrenndur að afli, og gengu sögur af hreysti
hans, harðfengi og hestamennsku, sem lifað hafa — og lifa enn —
á vörum Skagfirðinga. Sögn er uppi um fund þeirra Péturs í Vala-
dal og hins fræga hestamanns, Jóns Asgeirssonar á Þingeyrum:
Jón átti leið austur yfir Vatnsskarð að vetrarlagi, og var Bene-
dikt Blöndal, bóndi í Hvammi í Vatnsdal, í fylgd með honum.
Á leiðinni yfir Skarðið kvað Jón:
Við skulum koma að Valadal,
vænan finna Pétur.
Mínum góða gjarða-val
gefur enginn bemr.
Varð það að ráði. Beygðu þeir að Valadal og fóru þannig, að þeir
áttu sprettfæri gott á glæru, sem við blasti af hlaðinu í Valadal.
Þeir félagar stilltu sig ekki um að neyta þess, og skilaði báðum
vel, Jóni þó sýnu betur. Pétur stóð á hlaðinu ásamt með sonum
sínum, og fannst þeim mjög um snillitökin. Þegar gestirnir höfðu
stigið af hestum sínum, kvað Jón:
Svo að sloti sultinum
— sárum þrotinn trega —
reiðar-gota gullfögrum
gefðu notalega.
Báðar benda vísurnar til þess, að hin víðkunna rausn þar í Vala-
dal hafi náð lengra en á gestaborðið, þegar hestar í vetrarferð
áttu hlut að.
(Sögn Pálma Péturssonar og Sigríðar Björnsdótmr frá Hof-
stöðum.)
Pálmi í Syðra-Vallholti var talinn flesmm fræknari sinna sam-
ferðamanna. Símon Dalaskáld kvað hann hafa verið svo fiman,
2 Þáttur Péturs og Jórunnar í Valadal er í Skagf. æviskrám IV.
11