Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 166
SKAG FIRBINGABOK
b. Bindindishreyfing
I Sögu frá Skagfirðingum er getið um bindindishreyfingu árið
1844, en hreyfing þessi átti upptök sín í Ameríku fyrr á öldinni
og barst hingað til lands fyrir milligöngu nokkurra Fjölnismanna.6
Ekki verður séð, að hreyfing þessi hafi fundið náð fyrir augum
Fljótamanna, og engar heimildir eru finnanlegar utan sú, sem
áður var greind. Hins vegar hefst í Fljótum allmikil bindindis-
hreyfing árið 1867, og þá er stofnað hófsemdarfélag. Máli þessu
hafði verið hreyft á sýslunefndarfundi þann 14. janúar, og leiddi
af því, að sýslumaður sendi hreppstjórum bréf og hvatti til stcfn-
unar hófsemdarfélaga. Hófsemdarfélagið var stofnað í Holts-
hreppi þann 31. janúar 1867, og þá kjörin nefnd til þess að setja
félaginu lög til bráðabirgða. Þau voru tilbúin þann 30. marz, og
2. apríl rita hreppstjórar hreppsmönnum bréf og hvetja þá til
þátttöku. Hefst það á þessum orðum:
„Jafnvel þó brennivín og aðrir áfeingir spiritusdrykkir
geti verið ágætt meðal, bæði til hressíngar í hófi brúk-
aðir þegar maður er blaunir og öðruvísi illa á sig kom-
inn, og svo við ýmsum kránkleika, mættum við þó Is-
lendingar helst óska að þeir hefðu aldrei fluttst til lands
vors, þar eð svo mörgum af okkur hættir við vanbrúkun
á þeim, en hún (vanbrúkunin) hefur í för með sjer, eins-
og öllum er kunnugt heilsutjón á sál og líkama, ókristi-
legt og ósiðsamlegt orðbragð og háttalag, óhæfilegleika
til að gegna skyldum sínum, efnatjón, og yfir höfuð að
tala ósiðsemi og óreglu í þjóðlífi voru, ásamt mörgu
fleyra, sem til miðurs horfir og hjer væri oflángt upp að
telja.“7
Síðan segir, að bindindis- og hófsemdarfélög geti bezt bætt
úr vanda þessum, og því til stuðnings er nefnd bindindissemi
Húnvetninga, sem hafi með sér tvö félög, og nái þau yfir sýsluna
alla. Þá er bent á, að bráðabirgðalög séu tilbúin fyrir hófsemdar-
164