Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 131
FLJÓT í SKAGAFI RÐI Á NITJANDU ÖLD
og fóðurskort, og lítil von um að menn fái haldið þeim
óskemmdum, nema því að eins, að þeir eigi kost á tals-
verðum fóðurbæti, í viðbót við gjafakorn það, er hingað
hefur flutst til sýslunnar.“ls
I febrúar 1883 úthlutar svo hreppsnefnd Holtshrepps því korni,
sem til er óráðstafað, og áætlar, að hreppurinn hljóti svipaða eða
meiri kornúthlutun á því ári en árið áður.1!)
í fundargerð sýslunefndarfundar 6. febrúar 1884 segir af
almenningshag, að bændur séu „alment mjög tæpt staddir" og
því við borið, að kaupstaðarvörur hafi verið óvenju litlar og sums
staðar engar. Því hafi ekki verið unnt að útvega kornmeti að
gagni umfram gjafakorn, sem skipt var. Einnig segir, að gæftaleysi
hafi valdið því, að fiskafli brást, og því lítil björg af sjávargagni.
Þá segir: „... eptir því, sem annars er kunnugt, álítast útsveitirnar
Fljót og Skagi, þegar á allt er litið, einna vest farnar bæði hvað
snertir efnahag og bjargræði.“ 20 Þá kemur fram í sömu fundar-
gerð, að nauðsynlegt hefur verið að veita Holtshreppi hluta af
gjafastyrk, svo og að úthluta bændum þar miklu korni, bæði frá
Sauðárkróki og Siglufirði.
í hreppsskjölum kemur fram, að korni hefur verið úthlutað til
bænda nokkrum sinnum á þessu ári.21 Ekki eru varðveittar skýrsl-
ur um úthlutun eftir 1884, en þó hefur korni verið skipt á milli
bænda næstu ár á eftir. Þessar korngjafir hafa mjög bætt hag
bænda og bjargað því, sem bjargað varð á þessum árum, og fram
kemur í fundargerð sýslunefndar af fundi 12. júní 1884, að Holts-
hreppur hafi afþakkað hallærislán, sem hann hafði áður sótt um.22
A sýslunefndarfundi, sem hófst 28. janúar 1885, lýsti nefndar-
maðurinn úr Holtshreppi því yfir, „að ef sjávarafli brygðist á
næsta vori, væri allt útlit fyrir, að tjeð sveitarfjelag gæti ekki af
eigin rammleik borið þá byrði, er slíkur atvinnubrestur hlyti að
hafa í för með sjer“. 23 Þá kemur enn fram á sýslunefndarfundi,
sem hófst 9. júní 1886, að hreppsnefnd Holtshrepps telur óum-
flýjanlegt að fá lán á því yfirstandandi ári til þess að afstýra
hallæri.
ð
129